Fara í efni

Sýning - Bragðarefur með sniglaskeljum í Gallerí Gróttu

Valgerður Ýr Walderhaug sýnir Bragðarefur með sniglaskeljum. Á sýningunni má sjá verk á mörkum málverks og skúlptúrs.
Valgerður hefur áhuga á eiginleikum málverksins og leitast við að kanna efni þess, uppbyggingu, áþreifanleika og nærveru. Hún vinnur með fjöldaframleidda og fundna hluti úr nærumhverfi sínu sem hún umbreytir með malerískum aðferðum svo úr verða flóknar innsetningar þar sem litir gegna mikilvægu hlutverki.
 
Valgerður var í meistaranámi við myndlistardeild Listaháskólans í Þrándheimi árin 2019-2021 og í bakkalárnámi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands árin 2014-2017. Eftir útskrift hefur hún hlotið bæði starfslaun og verkefnastyrki í Noregi þar sem hún er búsett.
 
Valgerður hefur tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis.
Sýningunni lýkur 9. desember 2023.
Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?