5. september
Til baka í yfirlit
Ingibjörg Dalberg tekur á móti gestum á sýningu sína Fjöll og firnindi laugardaginn 5. september kl. 11-16.
Ingibjörg Dalberg tekur á móti gestum á sýningu sína Fjöll og firnindi laugardaginn 5. september kl. 11-16.
Viðfangsefni Ingibjargar eru náttúra Íslands, himinn og jörð, fjöll og firnindi. Villtur gróður við árbakka sem og fuglar, bæði kríur sem leika sér yfir tjörn eða velli og bjarthegri, eftirlætis flækingsfuglinn, sem stendur hnarreistur á framandi slóð.
Málverkin sem eru unnin með olíu á striga eru að mestu huglæg í túlkun íslenskrar náttúru, þar sem leitast er við að finna ró, bjartsýni og fegurð landsins, þar sem sjaldan ríkir logn en ævinlega blámi.
Seltjarnarnesið á sér sérstakan stað í hjarta Ingibjargar þar sem hún var félagi í Selkórnum, söngkór Seltirninga, um þrjátíu ára skeið. Sum málverkin skírskota til eftirlætis söngverka kórsins í áranna rás og eru því helguð því litríka tímabili í lífi hennar.
Málverkasýningin Fjöll og firnindi í Gallerý Gróttu er 6. einkasýning Ingibjargar, en einnig hefur hún tekið þátt í samsýningum.
Verið velkomin í Gallerí Gróttu