Fara í efni

Gallerí Grótta - Sýning

Meyvant Þórólfsson opnar sýningu sína NESIÐ – BYGGÐ OG ÁBÚENDUR -Hetjurnar í þanginu- í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 1. október kl. 17. Sýningu lýkur 31. október.

NESIÐ – BYGGÐ OG ÁBÚENDUR -Hetjurnar í þanginu- 

Meyvant Þórólfsson 

Þegar höfundur Seltirningabókar var spurður um kosti þess að búa á Seltjarnarnesi sagðist hann gjarnan grípa til þess að segja að „á Nesinu finni ég vel til fortíðarinnar. Hér hafi frá landnámstíð verið búið“. Með ritinu hafi hann þannig viljað kynna fyrir okkur það fólk „sem áður bjó á þessum slóðum, rammann um lífshætti þess, jarðir og bústaði, atvinnuhætti og annað sýsl“.

Viðfangsefnið. Hér ólst Meyvant Þórólfsson upp; viðfangsefni sýningarinnar er einmitt umhverfi og saga æskustöðvanna, Seltjarnarnesið, eða öllu heldur ytri byggðin (Framnesið) og saga ábúenda og byggðar þar. Allt frá barnsaldri hefur Meyvant haft áhuga á myndlist, en kveikjan að gerð verkanna á sýningunni var áður nefnd Seltirningabók, vandað rit sem Heimir Þorleifsson, fyrrum sögukennari Meyvants við Menntaskólann í Reykjavík, tók saman.

Menntun. Áhugi á myndlist tengist menntun og störfum Meyvants. Hann lauk B. Ed námi og starfaði við grunnskólakennslu á árunum 1978 til 1997 og kenndi þá einkum stærðfræði og náttúruvísindi á eldri stigum. Um skeið tók hann að sér kennslu í list- og verkgreinum, en þá vaknaði hjá honum sérstakur áhugi á vinnu með vatnsliti og olíu-pastel. Á kennaraárum við Laugalandsskóla í Holtum á 9. áratug síðustu aldar tók Meyvant þátt í samsýningu Rangæinga og hélt einkasýningu á pastelverkum í Félagsheimili Hveragerðis.

Um síðustu aldamót hóf Meyvant framhaldsnám í menntunarfræðum. Meistaraverkefnið fjallaði um hugtökin tíma og rúm í eðlis- og stærðfræðinámi með tengingu við svonefnda hugsmíðikenningu.

Hann lauk síðan doktorsnámi á sama sviði og gerðist lektor við Kennaraháskóla Íslands og síðar prófessor við Háskóla Íslands. Með námi og kennslu hefur Meyvant jafnan sinnt málun, einkum með vatnslit.

Mótun í listiðkun. Allt frá námsárunum við Kennaraháskóla Íslands og í starfi þar síðar kynntist Meyvant merku listafólki og sótti meðal annars námskeið í vatnslitamálun hjá Jóni heitnum Reykdal, samstarfsmanni hans þar. Á menntaskólaárum hafði Meyvant einnig sótt námskeið hjá Hringi Jóhannessyni, sem var þekktur fyrir ljóðrænt raunsæi í myndlist. Verk hans höfðu töluverð áhrif á Meyvant.

Skýringartexti (Annotation) fylgir hverju verki með sögulegri vísun og nánari upplýsingum um efni þess.

Verkin eru vatnslitamyndir af stærðinni 30 x 40 cm unnar á sýrufrían bómullarpappír. Rammar eru úr rauðálmi (Ulmus rubra), sem Andreas Fredriksson hannaði fyrir Ikea. Að miklu leyti var stuðst við ljósmyndir, flestar svart-hvítar. Í einhverjum tilvikum var því farið svolítið frjálslega með val á litum.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?