Fara í efni

Gallerí Grótta - Sýning

Michelle Bird opnar sýningu sína Eins og fiskur á þurru landi í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17:00.

Michelle Bird opnar sýningu sína Eins og fiskur á þurru landi í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17:00.

Michelle fæddist í San Francisco og ólst upp þar í borg og víðar í Kaliforníu og á Hawaii. Hún lærði myndlist í Hollandi og nam hjá málaraskáldinu Anton Marineau og sótti Rietveld-akademíuna. Á Indlandi lærði hún að vinna styttur úr bronsi í Honey Arts Modeling Center.

Michelle hefur sýnt víða um Evrópu og í Bandaríkjunum, auk þess að halda fyrirlestra og leggja stund á list. Michelle hefur komið að ótal listtengdum störfum og viðburðum og má þar nefna Verkefni í List fyrir alla, listasmiðjur ýmsar bæði hér á landi og erlendis.

Verk Michelle má finna í svissneskum einkasöfnum AXA Winterthur, Der Landbote og SEC Simola Eichmann Communications.

Á sýningunni Eins og fiskur á þurru landi má sjá lífleg og fjölbreytt listaverk unnin með ólíkum miðlum, þar á meðal olíu-, akrýl- og vatnslitum, auk Riso-prenta og annarra tjáningarforma. Öll verkin á sýningunni eru eftir listakonuna Michelle Bird og urðu til á þeim tólf árum sem hún hefur búið á Íslandi.

"Litatafla Michelle er jafn litrík og málverk hennar og óhlutbundnu málverkin hennar eru full af lífi. Táknrænu verkin hennar tjá yfirskilvitleg og dularfull þemu. Hvar sem Michelle og list hennar er að finna, getur þú verið viss um að sjá mikla lífsgleði."

- Lýsing frá fyrrverandi sýningarstjóra Kunstmuseum Basel Erwin Treu.

Listamannaspjall sunnudaginn 8. nóvember kl. 12:00.

Sýningin stendur til 5. desember 2026.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?