6. maí
Til baka í yfirlit
Miðvikudaginn 6. maí 2026 kl. 19:30-21.00 heldur Skipulags- og umferðarnefnd Seltjarnarnesbæjar opinn íbúafund um þróun miðbæjar Seltjarnarness í Gallerí Gróttu, fundar- og sýningarsal Bókasafns Seltjarnarness. Gengið inn frá Eiðistorgi.
Skipulags- og umferðarnefnd Seltjarnarnesbæjar heldur opinn íbúafund um þróun miðbæjar Seltjarnarness miðvikudaginn 6. maí 2026, kl. 19:30-21:00. Fundurinn verður haldinn í Gallerí Gróttu, fundar- og sýningarsal Bókasafns Seltjarnarness. Gengið inn frá Eiðistorgi.
Á fundinum munu fulltrúar KANON arkitekta kynna fyrirhugað skipulagsferli varðandi miðbæ Seltjarnarness. Tilgangur fundarins er að upplýsa bæjarbúa um uppbyggingarmöguleika á tveimur byggingarreitum, annars vegar svokölluðum "bensínstöðvarreit" og hins vegar á svokölluðum "Hagkaupsreit".
Tilgangur fundarins er einnig að taka við hugmyndum og ábendingum íbúa um málið og setja málið allt í formlegt skipulagsferli. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um málið - og verða heldur ekki teknar á fundinum, sem er fyrst og fremst hugsaður sem "hlustunarfundur" fyrir íbúa, ekki síst fyrir þau sem veljast í bæjarstjórn og skipulags- og umferðarnefnd bæjarins eftir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí nk.
KANON arkitektar unnu arkitektasamkeppni bæjarins um miðbæ Seltjarnarness fyrir um 10 árum. Þau sem þar starfa gerðu mikla stúdíu á landslagi, skipulagi, veðurfari og sjónarhornum úr ýmsum áttum vegna tillögu sinnar. Þau hafa einnig áður komið að skipulagsvinnu hverfa á Seltjarnarnesi.
Öll skipulags- og umferðarnefnd Seltjarnarness stendur einhuga að boðun fundarins.
Verið öll velkomin,
Seltjarnarnesbær