Fara í efni

Janus heilsuefling 65+ kynningarfundur kl. 13:15

Í febrúar verður tekinn inn nýr hópur þátttakenda í fjölþætta heilsueflingu fyrir 65 ára og eldri hér á Seltjarnarnesi en þetta heilsuprógram hefur virkað afar vel. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta á kynningarfundinn í hátíðarsal Gróttu kl. 13.15 mánudaginn 20. febrúar.

Fjölþætt heilsuefling 65+ er verkefni á vegum Seltjarnarnesbæjar og Janusar heilsueflingar. Verkefnið er fyrir einstaklinga 65 ára eða eldri sem eru með lögheimili á Seltjarnarnesi. 

Það sem er innifalið í verkefninu:

  • Styrktarþjálfun með þjálfara í World Class á Seltjarnarnesi 2x í viku
  • Þolþjálfun með þjálfara 1x í viku
  • Aðgangur að heilsu-appi Janusar heilsueflingar og þjálfunaráætlunum fyrir alla daga vikunnar
  • Reglulegir fyrirlestrar frá læknum, næringarfræðingum, sjúkraþjálfurum og öðrum sérfræðingum
  • Ítarleg heilsufarsmæling á 6 mánaða fresti hjá Janusi heilsueflingu
  • Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur um hollan lífsstíl
  • Aðgangskort í World Class og aðgangur að lokuðum Facebook hópi með heilsutengdum stuðningi

https://www.janusheilsuefling.is/frettir/kynningarfundur-a-seltjarnarnesi-20-februar-2023

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?