Fara í efni

Leik og Sprell

Leik og Sprell verður á Seltjarnarnesi í sumar! Söng- og leiklistarnámskeið með nóg af sprelli og skemmtileg sýning sett upp fyrir aðstandendur í lok námskeiðs.

Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.
Kennt er tímabilið 11.-15. ágúst kl. 9:00-12:00, verð: 28.000 kr. Kennari námskeiðsins er Diljá Pétursdóttir.
Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com

Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar!

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?