Fara í efni

Listamannaspjall NESIÐ – BYGGÐ OG ÁBÚENDUR

Meyvant Þórólfsson býður gestum og gangandi að koma við á sýningu sinni NESIÐ – BYGGÐ OG ÁBÚENDUR -Hetjurnar í þanginu- í Gallerí Gróttu laugardaginn 3. október milli kl. 11 og 14. Kaffi á könnunni og skemmtilegt spjall um Nesið, byggðina og ábúendur.

Meyvant Þórólfsson býður gestum og gangandi að koma við á sýningu sinni NESIÐ – BYGGÐ OG ÁBÚENDUR -Hetjurnar í þanginu- í Gallerí Gróttu laugardaginn 3. október milli kl. 11 og 14.
Kaffi á könnunni og skemmtilegt spjall um Nesið, byggðina og ábúendur.
Þegar höfundur Seltirningabókar var spurður um kosti þess að búa á Seltjarnarnesi sagðist hann gjarnan grípa til þess að segja að „á Nesinu finni ég vel til fortíðarinnar. Hér hafi frá landnámstíð verið búið“. Með ritinu hafi hann þannig viljað kynna fyrir okkur það fólk „sem áður bjó á þessum slóðum, rammann um lífshætti þess, jarðir og bústaði, atvinnuhætti og annað sýsl“.
Viðfangsefnið. Hér ólst Meyvant Þórólfsson upp; viðfangsefni sýningarinnar er einmitt umhverfi og saga æskustöðvanna, Seltjarnarnesið, eða öllu heldur ytri byggðin (Framnesið) og saga ábúenda og byggðar þar. Allt frá barnsaldri hefur Meyvant haft áhuga á myndlist, en kveikjan að gerð verkanna á sýningunni var áður nefnd Seltirningabók, vandað rit sem Heimir Þorleifsson, fyrrum sögukennari Meyvants við Menntaskólann í Reykjavík, tók saman.
Verkin eru vatnslitamyndir af stærðinni 30 x 40 cm unnar á sýrufrían bómullarpappír. Skýringartexti (Annotation) fylgir hverju verki með sögulegri vísun og nánari upplýsingum um efni þess.
Sýningin stendur til 31. október.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?