Fara í efni

LIT - ROF myndlistarsýning Önnu Álfheiðar Gallerí Grótta

Í Gallerí Gróttu sýnir Anna Álfheiður Brynjólfsdóttur verk sín LIT - ROF. Sýningin stendur til 3. júní nk.

LIT - ROF er fjórða einkasýning Önnu Álfheiðar. Sýningin inniheldur 20 málverk sem unnin hafa verið á þessu ári, 2023. Verkin samanstanda af þrívíddarseríu sem hún hefur verið að vinna með síðastliðin ár ásamt nýjum afbrigðum seríunnar. Málverkin eru unnin í þrívíð form, með akrýl á striga annars vegar og handskornum striga hins vegar þar sem lögð er áhersla á að einstök smáatriði fái að njóta sín í gegnum upplifun áhorfandans.

Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir (f.1977) útskrifaðist með B.A. gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2009 og M.A. gráðu í listkennslu frá sama skóla árið 2020. Síðastliðin ár hefur Anna verið að vinna með óhlutbundin þrívíð form málverksins í anda strangflatalistar sem hún nálgast á ljóðrænan hátt. Í verkum sínum leitast Anna við að skapa samtal milli áhorfandans og myndrammans í gegnum skynjun hans og upplifun á margþættum myndfletinum þar sem litanotkun, formgerð og endurtekning spila stór hlutverk í samspili við staðsetningar, tíma og rúm. Samhliða hefur Anna undanfarin ár leitast við að kanna mörkin milli listmiðla í verkum sínum, þ.e.a.s. milli málverks, textíls og skúlptúrs/lágmynda.

Sýningu lýkur 3. júní 2023.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?