Fara í efni

Opinn íbúafundur um fjármál bæjarins kl. 19 Gallerí Grótta

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar býður bæjarbúum til opins íbúafundar í Gallerí Gróttu á Bókasafni Seltjarnarnesi, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 19:00, þar sem farið verður yfir fjárhagsstöðu bæjarins og tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.

Opinn íbúafundur um fjárhagsstöðu og fjárhagsáætlun 2027

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar býður bæjarbúum til opins íbúafundar þar sem farið verður yfir fjárhagsstöðu bæjarins og tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.

Á fundinum verður farið yfir helstu forsendur fjárhagsáætlunar, þær aðgerðir sem gripið hefur verið til og eru fyrirhugaðar til að bæta rekstur og styrkja fjárhag sveitarfélagsins.

Markmið fundarins er að veita bæjarbúum skýra mynd af rekstri bæjarins, kynna þær ákvarðanir sem liggja fyrir og skapa vettvang fyrir opið samtal um helstu áskoranir og verkefnin sem framundan eru.

Fundurinn verður haldin miðvikudaginn 25. nóvember kl. 19 í Gallerí Gróttu á Bókasafni Seltjarnarness.

Bæjabúar eru hvattir til að mæta, kynna sér málin og taka þátt í samtalinu.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?