Fara í efni

Opinn viðtalstími kl. 10-12 Ása Kristín á bókasafninu

Ása Kristín Einarsdóttir, verkefnastjóri frístunda- og forvarnarstarfs Seltjarnarnesbæjar býður upp á opinn viðtalstíma alla fimmtudaga til áramóta.

Gerð nýrrar forvarnarstefnu í vinnslu

Tómstundir eru mikilvægur þáttur í lífi fólks á öllum aldri, fyrir börn og unglinga en einnig fyrir fólk á fullorðinsárum sem þurfa efla félagslega virkni og tengsl sín á milli og vill nýta frítíma sinn á uppbyggilegan og jákvæðan hátt. Þessa dagana er í vinnslu gerð forvarnarstefnu fyrir Seltjarnarnesbæ sem mun snerta á öllum aldurshópum og miða að því að tryggja öryggi, velferð og hag allra bæjarbúa.

Þú finnur Ásu, verkefnastjóra frístunda- og forvarnarstarfs á Bókasafni Seltjarnarness fimmtudaga til áramóta frá kl. 10:00 – 12:00.

Bæjarbúar á öllum aldri eru hvattir til að kíkja í kaffi og spjall um málefni frístunda og forvarna en öllum hugmyndum og ábendingum að bótum á stefnum bæjarins er tekið fagnandi og teknar til skoðunar. Ef að þú til að mynda lumar á hugmyndum að úrbótum í aðgengi, tómstundum, bættu umhverfi eða öðru sem tryggir bætt lífsgæði á Seltjarnarnesi eða þú hefur áhyggjur af áhættuþáttum sem eru að myndast í samfélaginu þá er þetta vettvangur til að taka spjallið og koma þínum hugmyndum og skoðunum á framfæri.

Verkefnastjóri er ávallt aðgengilegur fyrir samráð og til tómstundaráðgjafar fyrir alla aldurshópa og velkomið að hafa einnig samband í síma 5959100 eða með tölvupósti asa.k.einarsdottir@seltjarnarnes.is.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?