Fara í efni

Gissur Páll og Árni Heiðar syngja á Eiðistorgi kl. 12

Raddir rafmagna - föstudaginn 30. október kl. 12:00 bjóða þeir Árni Heiðar og Gissur Páll gestum og gangandi í ferðalag um ítölsku sönghefðina frá barokktímanum til rómantíska tímabilsins - allt innan veggja Eiðistorgs! Viðburðurinn er í tilefni Óperudaga og haldinn í samstarfi við Seltjarnarnesbæ.

Raddir rafmagna á Eiðistorgi í tilefni Óperudaga

Árni Heiðar og Gissur Páll bjóða gestum og gangandi í ferðalag um ítölsku sönghefðina frá barokktímanum til rómantíska tímabilsins - allt innan veggja Eiðistorgs!

Óhætt er að fullyrða að á Eiðistorgi hafi alltof sjaldan gefist tækifæri til að njóta tónlistar eftir Händel, Liszt, Verdi, Bellini og Donizetti en flutningur þeirra félaga og sú ljóðræna fegurð og tilfinningalega dýpt sem kjarnast í Belcanto stílnum gerir tónleikana að ómissandi upplifun.

Til að setja punktinn yfir i-ið má geta þess að aðgangur er ókeypis! Viðburðurinn er tilvalinn fyrir alla; skólahópa, fjölskyldur, vinnustaði og eldri borgara til að heyra fyrsta flokks tónlistarflutning á óvenjulegum stað.

Viðburðurinn fer fram í samstarfi við Seltjarnarnesbæ.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?