Fara í efni

Sumarlestur - Lestrarsprettur Lindu landnámshænu

Lestrarsprettur Lindu landnámshænu. Fáðu vegabréf á bókasafninu - Byrjaðu að lesa og leggðu af stað í geggjað ferðalag!

Hefur þú komið til Terra Gallina?

Linda landnámshæna fann fjársjóðskort í hillunni hjá afa sínum
kapteini Langlegg, sem hvarf á undarlegan hátt ásamt páfagauknum sínum, Hananú. Búðu til þitt eigið vegabréf og farðu í svakalega svaðilför með Lindu landnámshænu. Kannski rekist þið á afa Langlegg og Hananú!

Þetta verður ævintýri líkast! Þú getur heimsótt borgina Santíeggó, siglt yfir Fjaðrafjörð, skoðað pýramídana í Eggyptalandi og endað í sólinni á Hanama. 

Það eina sem þú þarft að gera er að lesa í 15 mínútur á dag þar til þú lendir á stjörnu. Þá getur þú farið á bókasafnið þitt og fengið stimpil í vegabréfið. Takmarkið er svo auðvitað að heimsækja alla áhugaverðu staðina í Hænulandi (það er sko það sem Terra Gallina þýðir) og fá stimpil á allar stjörnurnar. Fyrir hvern stimpil færðu happamiða og gætir unnið verðlaun.
Hver veit nema heppnin verði með þér!

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?