Fara í efni

Fjöll og firnindi - Sýning í Gallerí Gróttu

Ingibjörg Dalberg myndlistarkona opnar sýningu sína Fjöll og firnindi í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 27. ágúst n.k.

Viðfangsefni Ingibjargar eru náttúra Íslands, himinn og jörð, fjöll og firnindi. Villtur gróður við árbakka sem og fuglar, bæði kríur sem leika sér yfir tjörn eða velli og bjarthegri, eftirlætis flækingsfuglinn, sem stendur hnarreistur á framandi slóð.

Málverkin sem eru unnin með olíu á striga eru að mestu huglæg í túlkun íslenskrar náttúru, þar sem leitast er við að finna ró, bjartsýni og fegurð landsins, þar sem sjaldan ríkir logn en ævinlega blámi.

rnarnesið á sér sérstakan stað í hjarta Ingibjargar þar sem hún var félagi í Selkórnum, söngkór Seltirninga, um þrjátíu ára skeið. Sum málverkin skírskota til eftirlætis söngverka kórsins í áranna rás og eru því helguð því litríka tímabili í lífi hennar.

Málverkasýningin Fjöll og firnindi í Gallerý Gróttu er 6. einkasýning Ingibjargar, en einnig hefur hún tekið þátt í samsýningum.

Myndlistarnám hefur Inga sótt til Englands 1989 National Diploma Foundation, Higher Education Art and Design London og 1988 Lincoln College of Further Education A Level Art England. Síðar fjölmörg námskeið, í Frakklandi 1993 École des Beaux-Arts - París og á Íslandi í Myndlistaskólanum í Reykjavík, Myndlistarskóla Kópavogs og Listabraut FB.

Annað myndlistartengt nám er BA próf í sagnfræði og listasögu frá Háskóla Íslands 2010 og var viðfangsefni lokaritgerðarinnar ,,Brot úr sögu smámynda á Íslandi. Upphaf og endalok 1770 - 1840” tengt órannsökuðum anga í sögu myndlistar hér á landi.

Sýningu lýkur 26. september 2026.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?