21. maí - 20. júní
Til baka í yfirlit
Magnús V. Guðlaugsson opnaði ljósmyndasýninguna Farið í fjörurnar í Gallerí Gróttu þann 21. maí og stendur hún til 20. júní.
Magnús V. Guðlaugsson opnar ljósmyndasýninguna Farið í fjörurnar í Gallerí Gróttu kl. 17. þann 21. maí.
Eftir síðustu aldamót hefur Magnús unnið að og sýnt ljósmyndaverk, innsetningu og fleira. Síðustu árin hefur hann þó einbeitt sér að ljósmyndun.
Myndefnið er gjarnan sótt í ýmiss konar birtingarmyndir náttúrunnar, oftast í nærmynd. Í nálgun sinni hefur Magnús m.a. leitað í fyrirbærafræði sér til halds og trausts. Ljósmyndirnar á sýningunni eru teknar í fjörum á Sólheimasandi, Skógasandi og á Seltjarnarnesi.
Kontaktupplýsingar:
Heimasíða: https://magnusvg.smugmug.com
Netfang: mvg@centrum.is
Sími: 897 3565
Sýningin stendur til 20. júní (þann dag er sýningin opin kl. 13-17 með aðgengi frá Eiðistorgi).