Guðrún Matthíasdóttir opnar sýningu sína Tilbrigði í Gallerí Gróttu.
Vatn er alls staðar, inni í okkur og í kringum okkur. Við tökum það sem sjálfsagðan hlut og við gleymum stundum að gefa því gaum hversu falleg eru tilbrigði vatnsins.
Guðrúnu hefur alltaf fundist síbreytileiki vatnsins spennandi viðfangsefni í ljósmyndun og hefur tekið óteljandi myndir af því í gegnum tíðina, í mismunandi formum. Til að mynda af daggardropum, ískristöllum og ölduslettum við sjávarborðið. Yfirleitt kýs hún að notast við macro- og aðdráttarlinsur til þess að fá meiri nálægð og aðra sýn.
Undanfarin ár hefur hún einbeitt sér að formunum og litunum sem umbreytast á vatnsfletinum. Með því að nálgast yfirborðið birtist breytt mynd og speglunin í vatninu tekur á sig sjálfstæða og abstrakt mynd. Markmiðið er að koma áhorfandanum á óvart og afhjúpa form og liti sem oft fara framhjá okkur en birtast hverjum og einum á sinn hátt.
Guðrún tók grunnnám í myndlist á sínum tíma en valdi sér svo önnur svið sem veittu henni tækifæri til að ferðast og búa um árabil erlendis. Hún segir kynni hennar af ólíkum menningarheimum og framandi landslagi hafi verið mjög auðgandi og örvandi fyrir sköpun sem hefur alltaf verið hluti af lífi hennar og að myndavélin fylgi henni hvert sem hún fer. Guðrún leggur stund á ýmsa sköpun, s.s. ljósmyndun, málun og skriftir. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði í Frakklandi og hér á Íslandi og gefið út tvær barnabækur.