Fara í efni

Bæjarráð

09. nóvember 2017

Haldinn í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Austurströnd 2,

Fimmtudaginn 9. nóvember og hófst hann kl. 08:00

Fundinn sátu: Bjarni Torfi Álfþórsson aðalmaður, Ásgerður Halldórsdóttir aðalmaður, Guðmundur Ari Sigurjónsson, aðalmaður og Árni Einarsson áheyrnarfulltrúi.

Sigrún Edda Jónsdóttir formaður boðaði forföll.

Baldur Pálsson fræðslustjóri sat undir erindi nr. 3.

Alda Gunnarsdóttir sat undir erindi nr. 9

Ennfremur sat fundinn Gunnar Lúðvíksson fjármálastjóri, sem ritaði fundargerð í tölvu.

Fyrir var tekið:

  1. Málsnúmer 2017090200 .
    Forsendur við gerð fjárhagsáætlunar 2018.
    Tekjur:
    Útsvar, álagningarhlutfall 13,70%
    Fasteignagjöld.
    Fasteignaskattur, A-hluta - íbúðarhúsnæði, álagningarhlutfall 0,18%, af fasteignamati.
    Fasteignaskattur, B-hluti - opinbert húsnæði, álagningarhlutfall 1,32%, af fasteignamati.
    Fasteignaskattur, C-hluti - atvinnuhúsnæði og óbyggt land, álagningarhlutfall 1,1875% af fasteignamati.
    Lóðarleiga: A-hluta verður 0,40% og B-hluta 1,75% af fasteignamati lóðar.

    Gjalddagar fasteignagjalda eru 10.
    Elli- og örorkulífeyrisþegar fá afslátt af fasteignagjöldum íbúðarhúsnæðis til eigin nota, samkvæmt samþykktum reglum þar um.
    Vatnsgjald: Álagningarhlutfall 0,09% af fasteignamati.
    Sorphirða: kr. 30.050.-, á hverja eign.
    Fráveitugjald: Álagningarhlutfall 0,15% af fasteignamati.
    Arðgreiðsla Vatnsveitu til Aðalsjóðs á árinu 2018 verður kr. 25.000.000.- og er hún tekjufærð hjá Aðalsjóði, í ársreikningi A og B hluta er sú tekjufærsla bakfærð.
    Helstu gjaldskrár hækki um 3% til að mæta verðlagsbreytingum ársins 2018.

    Gjöld:
    Laun eru hækkuð til samræmið við gildandi kjarasamninga Launanefndar sveitarfélaga við þau stéttarfélög, sem starfsmenn Seltjarnarnesbæjar taka laun samkvæmt. Gjaldaliðir sem fylgja vísitölubreytingum eru uppreikningar m.v. áætlaðar verðlagsbreytingar ársins 2018.

    Íbúafjöldi:
    Gert er ráð fyrir fjölgun íbúa sé 30 á árinu 2018.
    Samkvæmt ákvæði 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 skal sveitarstjórn ákveða fyrir 1. desember ár hvert hvaða hundraðshluti verði lagður á tekjur manna á næsta ári.
    Bæjarráð vísar tillögu um álagningu gjalda til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  2. Málsnúmer 2014040047.

    Lækningaminjasafn við Nesstofu.

    Bréf Mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 25.10.2017 lagt fram. Bæjarstjóri gerði grein fyrir máli, bæjarstjóra falið að vinna áfram með málið.

  3. Málsnúmer 2017080620.

    Umsókn um styrk til náms í leikskólakennarafræðum.

    Erindi frá BEA til náms í leikskólakennarafræðum. Fræðslustjóri fylgdi eftir erindinu. Bæjarráð samþykkir erindið.

  4. Málsnúmer 2017060228.

    Opið bókhald.

    Bæjarstjóri upplýsti að samið hafi verið við KPMG um birtingu gagna á heimasíðu bæjarins varðandi ,,Opið Bókhald“. Útfærslan verði tilbúin 1. janúar 2018.

  5. Málsnúmer 2017100027.

    Ályktun frá samráðsfundi Félags stjórnenda leikskóla.

    Bréf Félags stjórnenda leikskóla dags. 28. september 2017 lagt fram, þar sem áhyggjur félags stjórnenda í leikskólum landsins hafa varðandi langa viðveru barna í leikskólum landsins, lagt fram.

  6. Málsnúmer2017100091.

    Vörugjöld bílaleigubíla og skoðun á skattbyrgði bílaleigufyrirtækja.

    Bréf SAF dags. 13.10.2017 varðandi skattlagningu á bílaleigur, lagt fram.

  7. Málsnúmer 2017100091.

    Húsfriðunarsjóður Minjastofnunar Íslands.

    Bréf Minjastofnunar Íslands varðandi umsóknarfrest til húsfriðunarsjóðs fyrir árið 2018, lagt fram.

  8. Málsnúmer 2017060394.
    Erindi frá fjölskyldunefnd dags. 29.06.2017 varðandi Skólabraut 1.
    Bæjarstjóri lagði fram mat VSÓ á ástandi Skólabrautar 1. Bæjarstjóri og Jóhannes Geir Benjamínsson gerðu grein fyrir skýrslu VSÓ, lagt fram.

  9. Málsnúmer 2017090281.
    Erindi frá fjölskyldunefnd dags. 29.06.2017 varðandi Sæbraut 2.
    Alda Gunnarsdóttir, launafulltrúi mætti á fund nefndarinnar og fór yfir málið.

Fundi var slitið kl.: 10:24

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?