Fara í efni

Bæjarráð

06. desember 2018

Haldinn í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Austurströnd 2,

Fimmtudaginn 6. desember, 2018, og hófst hann kl. 08:15

Fundinn sátu: Magnús Örn Guðmundsson, formaður, Sigrún Edda Jónsdóttir aðalmaður, Guðmundur Ari Sigurjónsson, aðalmaður.

Ennfremur sat fundinn Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri og Gunnar Lúðvíksson fjármálastjóri, sem ritaði fundargerð í tölvu

Undir lið nr. 2 sat Reynir Kristinsson frá Nor ehf., Bjarni Torfi Álfþórsson, Snorri Aðalsteinsson.

  1. Málsnúmer 2018040178.

    Skíðasvæðin, framtíðarsýn og samstarfssamningur. Lagt fram undirritað samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Bæjarráð samþykkir framlagðan samning og drög að kostnaðaráætlun vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. Málsnúmer 2018050197/2018110047.

    Á fund bæjarráðs mætti Reynir Kristinsson, ráðgjafi frá Nor ehf. og gerði grein fyrir tillögum um fyrirkomulag samstarfs sveitarfélaganna um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.

    Bæjarráð samþykkir að taka þátt í vinnu við undirbúning útboðs á áframhaldandi sameiginlegri ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjóra falið að senda fyrirspurnir varðandi þetta verkefni sem ræddar voru á fundinum til framkvæmdastjóra SSH til skoðunar.

    Bjarni Torfi Álfþórsson og Snorri Aðalsteinsson, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

  3. Málsnúmer 2018120009.

    Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 4.12.2018 varðandi umboð til kjarasamningsgerðar. Bæjarstjóri lagði fram uppfært umboðseyðublað. Bæjarráð staðfestir umboð samninganefndar sveitarfélaga og veitir sambandinu umboð til kjarasamningsgerðar vegna hvers og eins stéttarfélags sem starfsmenn þess eiga aðild að.

  4. Málsnúmer 2018120025.

    Bæjarstjóri lagði fram breytingu á reglum varðandi greiðslu á tómstundastyrkjum til fimm ára barna. Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum og skilyrðum um greiðslu á tómstundastyrkjum Seltjarnarnesbæjar frá 1. janúar 2019.

  5. Málsnúmer 2018120015.

    Fjármálastjóri kynnti verðkönnun varðandi vátryggingar bæjarins. Eftirfarandi tilboð lögð fram.

    Bæjarráð samþykkir að taka lægsta tilboðinu frá VÍS og felur fjármálastjóra afgreiðslu málsins.

  6. Málsnúmer 2017090200.

    Lánsheimild vegna byggingu hjúkrunarheimilis og fimleikahúss á Seltjarnarnesi.

    Fjármálastjóri kynnti lántöku vegna framkvæmda. Fjármálastjóri fór enn fremur yfir yfirlit lána og hvernig skuldaviðmið bæjarins mun breytast í ár m.v. samanburð ársreiknings 2017, úr 46% í 55%. Bæjarráð samþykkir eftirfarandi lánsheimild:

    "Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 500.000.000, með lokagjalddaga þann 5. maí 2034 og 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.

    Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

    Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi og til byggingar á fimleikasal við íþróttamiðstöð Seltjarnarness sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

    Jafnframt er Gunnari Lúðvíkssyni, fjármálastjóra Seltjarnarnesbæjar kt. 030357-6399, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Seltjarnarnesbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."

  7. Málsnúmer 2017090200.

    Viðauki við fjárhagsáætlun.

    Viðauki við fjárhagsáætlun vegna kostnaðar við launahækkana nýrra kjarasamninga, aukningar á útsvarstekjum, tekjum jöfnunarsjóðs og einnig aukinn fjárfestingkostnaður.
    Fjármálastjóri gerði grein fyrir endurskoðun á áætlun og rauntölum launa fyrir árið 2018.

    Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins samkvæmt 1. málsl. 2 mgr. 63 gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð.

    Bæjarráð samþykkir kostnað að upphæð kr. 203.447.836,- vegna launahækkana nýrra kjarasamninga 2018, veikinda og fjölgun barna í grunn- og leikskóla. Kostnaður þessi skal greiddur af mismunandi deildum skv. fylgiskjali 1 og kostnaðarauka skal mæta með lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð.

    Bæjarráð samþykkir einnig tekjuauka að upphæð kr. 90.000.000,- á útsvarstekjum vegna kjarasamningsbreytinga. Tekjur þessar skulu færðar á lið 00-010 0020 í þegar samþykktri áætlun fyrir árið 2018. Tekjuauka skal mætt með hækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð.

    Bæjarráð samþykkir tekjuauka að upphæð kr. 38.745.773,- á framlögum jöfnunarsjóðs. Tekjur þessar skulu færðar á lið 00-100 0110 í þegar samþykktri áætlun fyrir árið 2018. Tekjuauka skal mætt með hækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð.

    Bæjarráð samþykkir kostnað að upphæð kr. 200.000.000,- vegna bygginga á hjúkrunarheimili á Seltjarnarnesi. Kostnaður þessi skal greiddur af 5610 í þegar samþykktri áætlun fyrir árið 2018. Kostnaðarauka skal mæta með lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð.

    Bæjarráð samþykkir kostnað að upphæð kr. 8.000.000,- vegna kaupa á félagslegri íbúð. Kostnaður þessi skal greiddur af Bæjarsjóði Seltjarnarness og færðar á lið 58 í þegar samþykktri áætlun fyrir árið 2018. Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð.

  8. Ársskýrsla Seltjarnarnesbæjar

    Formaður óskaði eftir að ársskýrsla ársins 2017 verði sett sem fyrst inn á heimasíðu bæjarins. Einnig óskar bæjarráð að fá upplýsingar um ferlið á næsta fundi.

    Fleira ekki tekið fyrir.

    Fundi slitið kl. 9:50

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?