189. fundur bæjarráðs
Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 5, fimmtudaginn 12. febrúar 2026 kl. 08:15.
Mættir: Magnús Örn Guðmundsson, Ragnhildur Jónsdóttir og Sigurþóra Bergsdóttir
Fundarritari: Svava Sverrisdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs.
1. 2025050141 – Heimild til lántöku hjá LS
Fjármálastjóri leggur fram beiðni um að lánsfjármögnun í samræmi við fjárhagsáætlun bæjarins vegna byggingu leikskóla.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar málinu til bæjarstjórnar. Bæjarráð óskar eftir fundargerðum frá reglulegum fundum starfsmanna bæjarins með eftirlitsaðila um byggingu leikskólans.
2. 2026020047 – Niðurgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum
Minnisblað varðandi niðurgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að hækka greiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum um 17.000 kr. á mánuði.
3. 26020030 – Samstarfssamningur um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna
Eftirfarandi erindi frá stjórn SSH liggur fyrir fundinum og óskað er eftir afgreiðslu bæjarráðs.
2. Viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna – 2510016
Sviðsstjórar velferðarsviða sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sóttu, undir forystu Reykjavíkurborgar, um styrk til mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna stofnsetningar miðlægs bráða- og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna á höfuðborgarsvæðinu. Fallist hefur verið á að veita styrk að fjárhæð 240.727.235 kr., og er honum ætlað að nýtast til launagreiðsla og kaupa á sérhæfðri ráðgjöf en ekki annars kostnaðar.
Framangreint var kynnt á 617. fundi stjórnar SSH og skrifstofu SSH þá falið að taka þátt í nánari útfærslu og samningagerð í tengslum við ofangreint verkefni í samvinnu við samráðshóp á sviði velferðarmála.
Nú eru fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna og drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps. Gerð er tillaga um að þeim verði vísað til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélaganna. Einnig liggja fyrir drög að samstarfsyfirlýsingu vegna þátttöku Barna- og fjölskyldustofu og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þessu verkefni
Þá liggja fyrir til kynningar styrkumsókn vegna verkefnisins og styrktarsamningur mennta- og barnamálaráðuneytis við Reykjavíkurborg, dags. 6. nóv. 2025.
Niðurstaða:
Stjórn SSH samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og er skrifstofu SSH falið að senda fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna og drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélaganna.
Bæjarráð samþykkir samstarfssamninginn samhljóða og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
4. 2026020036 – Greiðsluviðmið fjárhagsaðstoðar hjá Seltjarnarnesbæ árið 2026
Erindi frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs varðandi hækkun á greiðsluviðmið fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2026 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir hækkun á greiðsluviðmiði fjárhagsaðstoðar.
5. 2026020037 – Greiðslur til stuðningsfjölskyldna árið 2026
Erindi frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs varðandi greiðslur til stuðningsfjölskyldna fyrir árið 2026 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir erindið.
6. 2026010310 – Viðbrögð við niðurstöðu ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs.
Tillaga vinnuhóps að útfærslu til að mæta ákvörðun ESA í máli nr. 81738, er lögð fram til samþykktar:
Í bréfi SSH, dagsett 16. janúar sl., eru lagðar fram niðurstöður ESA vegna tekjuskattsundanþágu SORPU bs. Lagt er til að bæjarstjórn samþykki að SORPU bs. verði heimilað að stofna tvö ný dótturfélög með takmarkaðri ábyrgð, nánar tiltekið Lok ehf. og Líf ehf., sem munu taka yfir efnahagslega starfsemi SORPU bs. Í því felst að Lok ehf. mun annast móttöku rekstrarúrgangs og rekstur urðunar og Líf ehf. mun annast rekstur GAJA og meðhöndlun lífræns úrgangs. Lögbundin starfsemi eigendasveitarfélaganna, þar með talin ábyrgð á farvegi úrgangs frá heimilum, verður áfram rekin innan SORPU bs. Með þessari útfærslu er sá rammi sem samið var um við ESA árið 2024 útfærður í framkvæmd, á grundvelli fyrri samþykkta eigenda.
Bæjarráð samþykkir tillöguna um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga SORPU bs., Líf ehf. og Lok ehf., samhljóða og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7. 2025070027 – Mánaðaryfirlit – jan – nóv 2025
Fjármálastjóri leggur fram mánaðaryfirlit fyrir tímabilið janúar til nóvember 2025.
Bæjarráð óskar eftir skýringum frá tryggingastærðfræðingi um mikla hækkun lífeyrisskuldbindingar á árinu 2025.
Fundi slitið: 9:40