190. fundur bæjarráðs
Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 5, fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 08:15.
Mættir: Magnús Örn Guðmundsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Sigurþóra Bergsdóttir og Þór Sigurgeirsson
Fundarritari: Svava Sverrisdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs.
1. 2025030160 – Dagdvöl Seltjarnarnesbæjar
Bréf frá Vigdísarholti ehf. um uppsögn á Samsstarfssamningi um rekstur dagdvalarrýma Seltjarnarnesbæjar, lagt fram til kynningar.
2. 2026030026 – Almenningssamgöngur – þjónustusamningur og samstarfssamningur
Drög að þjónustusamningi og samstarfssamningi vegna almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu lögð fram ásamt öðrum gögnum.
Eftirfarandi erindi frá stjórn SSH dags. 2. mars. 2026, liggur fyrir fundinum og óskað er eftir afgreiðslu bæjarráðs.
2409007 - Fyrirkomulag almenningssamgangna ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Fyrirliggjandi eru drög að þjónustusamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.
Jafnframt eru fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi milli Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Er gerð tillaga um að framangreindum samningsdrögum verði vísað til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélaganna og fylgt eftir þar með kynningum verði eftir því leitað.
Niðurstaða fundar:
Samþykkt.
Bæjarráð samþykkir aðild sveitarfélagsins að samningunum og felur bæjarstjóra að undirrita þjónustusamninginn fyrir hönd bæjarins. Vísað til samþykkis í bæjarstjórn.
3. 2024100215 – Nýtt fyrirkomulag leikskóla – tillaga að breytingu á reglum
Tillaga að breytingu á reglum um gjaldskrá leikskóla lögð fram.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
4. 2025090275 – Nýtt fyrirkomulag leikskóla – tillaga að gjaldskrá
Tillaga að nýrri gjaldskrá leikskóla fyrir leikskóla á Seltjarnarnesi lögð fram.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með tveimur atkvæðum.
Bókun fulltrúa Samfylkingar og óháðra:
Fulltrúi Samfylkingar og óháðra situr hjá við afgreiðslu málsins. Að okkar mati hefði þurft að standa betur að undirbúningi breytinganna og eiga markvissara samtal við foreldra leikskólabarna á Seltjarnarnesi áður en þær voru lagðar fram.
Sveitarfélög víða um land hafa endurskoðað fyrirkomulag dvalartíma barna í leikskólum í kjölfar styttingar vinnuvikunnar og breytinga sem leiða af kjarasamningum, og víða hefur tekist að vinna slíkar breytingar í meiri sátt við foreldra.
Mikilvægt er að slíkar breytingar taki tillit til stöðu tekjulægri foreldra og séu metnar út frá jafnréttissjónarmiðum, svo þær lendi ekki verr á konum. Aðgengi barna að leikskólaþjónustu má ekki ráðast af fjárhagsstöðu foreldra.
5. 2026030053 – Brynja leigufélag – beiðni um stofnframlög
Beiðni um stofnframlag frá Brynju leigufélagi, um stofnframlag fyrir þrjár íbúðir lögð fram.
Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum og kynningu, málinu frestað.
6. 2025040064 – Málefni sundlaugar
Fjármálastjóri leggur gögn varðandi opnunartíma sundlaugar fram.
7. 2024020210 – Byggings nýs leikskóla
Fundargerðir verktaka lagðar fram til kynningar.
8. 2025120076 – Austurströnd 2 - sala
Bæjarstjóri fer yfir stöðu á sölu Austurstrandar 2.
9. 2026030038 – Þróun lífeyrisskuldbindingar 2025
Bréf tryggingastærðfræðings um þróun lífeyrisskuldbindingar bæjarins 2025 lagt fram til kynningar.
10. 2026030038 – Dagsetningar ársreiknings 2025
Tillaga að dagsetninga á framlagningu ársreikninga bæjarfélagsins lögð fram.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
11. 2026030038 – Óendurskoðað uppgjör 2025
Fjármálastjóri leggur fram óendurskoðað uppgjör 2025 til kynningar.
Fundi slitið: 10:07