Fara í efni

Bæjarráð

192. fundur 16. apríl 2026 kl. 08:15 - 09:12 fundarherbergi að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

192. fundur bæjarráðs

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 5, fimmtudaginn 16 apríl 2026 kl. 08:15.

Mættir:  Magnús Örn Guðmundsson, Ragnhildur Jónsdóttir og Sigurþóra Bergsdóttir

Fundarritari: Svava Sverrisdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs.

1. 2026030053 – Brynja leigufélag – umsókn um stofnframlag

Jónas Páll Jakobsson, framkvæmdastjóri Brynju leigufélags, kemur á fundinn kl. 8:15.

Jóhanna Ósk Ásgerðardóttir frá félagsþjónustu Seltjarnarness kemur inn á fundinn sem áheyrnarfulltrúi.

Jónas kynnti starfsemi félagsins.

Jónas Páll og Jóhanna víkja af fundi kl. 8:54

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram með sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

2. 2025040064 – Málefni sundlaugar Seltjarnarness.

Gögn varðandi opnunartíma sundlaugar lögð fram.

Samþykkt að fela bæjarstjóra að undirbúa að breyta sumaropnunartíma aftur til fyrra horfs og ræða við World Class um að útfæra samræmdan opnunartíma. Stefnt er að því að breytingar taki gildi 2. maí og mun á sama tíma taka við ítarlegri talning en verið hefur. Ákvörðunin verður endurskoðuð í haust.

Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks

Í haust tóku gildi breytingar á opnunartíma sundlaugar. Ráðist var í breytingar með hagræðingu að leiðarljósi og ollu breytingarnar óánægju meðal bæjarbúa. Þrátt fyrir að breytingar hafi skilað nokkurri hagræðingu er sú hagræðing undir væntingum af ýmsum ástæðum. Í ljósi óánægju með breytinguna og fjölda áskorana frá bæjarbúum teljum við rétt að bregðast við. Mikilvæg forsenda er World Class breyti einnig tilbaka opnunartíma sínum til hagsbóta fyrir bæjarbúa og munum við beita okkur fyrir því.

3. 2026030018 – Úthlutun til Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027

Á 346. fundi skólanefndar 09.04.2026 var eftirfarandi málum vísað til bæjarráðs:

3. 2026030018 - Úthlutun til Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2026 -2027.

Skólanefnd samþykkir tillögu að úthlutun til Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2026-2027 með

fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir úthlutun til Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2026 – 2027.

4. 2026030019 – Úthlutun til Valhúsaskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027

Á 346. fundi skólanefndar 09.04.2026 var eftirfarandi málum vísað til bæjarráðs:

4. 2026030019 - Úthlutun til Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2026 -2027.

Skólanefnd samþykkir tillögu að úthlutun til Valhúsaskóla fyrir skólaárið 2026 -2027 með

fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir úthlutun til Valhúsaskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027.

 

Fundi slitið: 9:12

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?