Fara í efni

Bæjarráð

193. fundur 07. maí 2026 kl. 08:15 - 09:29 fundarherbergi að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

193. fundur bæjarráðs

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 5, fimmtudaginn 7. maí 2026 kl. 08:15.

Mættir: Magnús Örn Guðmundsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Sigurþóra Bergsdóttir og Þór Sigurgeirsson

Fundarritari: Svava Sverrisdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs.

1. 2026030053 – Brynja leigufélag – umsókn um stofnframlag

Sviðsstjóri fjármála leggur fram minnisblað um stöðu á félagslegu húsnæði á Seltjarnarnesi og áhrif þess að vera í samstarfi við Brynju leigufélag um kaup á félagslegum íbúðum.

Bæjarráð samþykkir umsókn Brynju leigufélags um stofnframlag til kaupa á einni íbúð til reynslu. Samþykkið er háð því skilyrði að sveitarfélagið fái að koma að úthlutun

Bókun Samfylkingar og óháðra:

Fulltrúi Samfylkingar og óháðra samþykkir þá afgreiðslu að bærinn samþykki umsókn Brynju húsnæðisfélags um kaup á einni íbúð, jafnframt vil undirrituð taka fram að ég hefði talið betra að samþykkja kaupin á þremur íbúðum. Nú eru sjö manns á biðlista eftir félagslegri íbúð og eru því þrjár íbúðir betri kostur.

Húsnæðisöryggi er grundvöllur þess að fólk geti lifað með reisn og tekið þátt í samfélaginu okkar, öllum til heilla.

Sigurþóra Bergsdóttir

2. 2024020210 – Bygging nýs leikskóla

Verkfundaskýrslur nr. 12 - 15 lagðar fram.

3. 2026050015 – Sorphirða Seltjarnarnesbæjar – nýjar samþykktir

Uppfærðar samþykktir vegna sorphirðu Seltjarnarnesbæjar lagðar fram til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir samþykktirnar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

4. 2026040250 – Endurnýjun samstarfssamnings við Golfklúbb Ness

Samningur við Golfklúbb Ness sem rann út í desember 2025 er lagður fram til upplýsingar. Fyrir liggur beiðni um aukið fjárframlagt til að standa undir auknu barnastarfi við golfklúbbinn.

Málinu frestað. Bæjarráð tekur vel í erindið en óskar eftir greinargerð frá ÍTS með samanburði á samningum vegna styrkja til íþrótta- og tómstundastarfs barna á Seltjarnarnesi.

5. 2026050020 – Fuglatalning vorið 2026

Eftirfarandi bókun frá umhverfisnefnd lögð fram:

3. 2026050020 – Fuglatalning vorið 2026

Farið yfir stöðu málsins og kostnaðaráætlun lögð fram.

Afgreiðsla: Samþykkt að fela Jóhanni Óla að framkvæma fuglatalningu. Nefndin bendir á mikilvægi þess að samfella sé í fuglatalningu milli ára og óskar eftir áframhaldandi fjárveitingu bæjarráðs til málsins.

Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að regluleg fuglatalning fari fram á Seltjarnarnesi og samþykkir áframhaldandi fjárveitingu í verkið.

 

Magnús Örn Guðmundsson, formaður bæjarráðs, þakkar nefndarmönnum, bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála, kærlega fyrir samstarfið á kjörtímabilinu. Ragnhildur Jónsdóttir og Sigurþóra Bergsdóttir þakka sömuleiðis fyrir gott samstarf.

 

Fundi slitið: 9:29

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?