196. fundur bæjarráðs
Haldinn í fundarsal að Austurströnd 5, mánudaginn 7. september 2026 kl. 08:15.
Mættir: Elísabet Einarsdóttir, Björn Jóhannesson, Björn Jóhannsson, Þór Sigurgeirsson og Kristinn Ólafsson.
Fundarritari: Svava Sverrisdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs.
Dagskrá:
1. 2025080267 – 6 mánaða uppgjör
6 mánaða uppgjör fyrir Seltjarnarnesbæ 2026 lagt fram.
2. 2026090044 – Verk- og tímaáætlun v. fjárhagsáætlunar 2027
Fjármálastjóri leggur fram drög að verk- og tímaáætlun fyrir fjárhagsáætlun 2027.
Bæjarráð samþykkir drög að verk- og tímaáætlun .
3. 2026090044 –Forsendur rammaáætlun 2027
Fjármálastjóri leggur fram forsendur fyrir rammaáætlun 2027 til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir forsendurnar með breytingum.
.4. 2026090047 – Leigusamningur Austurströnd 5 – efri hæð
Fjármálastjóri leggur fram leigusamning á Austurströnd 5 til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir leigusamning vegna Austurstrandar 5. Bæjarstjóra falið að vinna málið vegna leigusamnings Austurstrandar 4 áfram vegna tilfærslu á starfsstöðvum.
5. 2026090048 – Austurströnd 2 – viðgerðir og endurbætur 2026
Bæjarstjóri fer yfir áætlaðar framkvæmdir sem fara þarf í fyrir sölu á Austurströnd 2 og hvað þarf að gera í framhaldinu.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði um endurbætur á húsinu. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og fá annað verðmat á eigninni.
Fundi slitið: 10:07