Fara í efni

Bæjarráð

197. fundur 18. september 2026 kl. 08:15 - 09:42 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

197. fundur bæjarráðs

Haldinn í fundarsal að Austurströnd 5, föstudaginn 18. september 2026 kl. 08:15.

Mættir: Elísabet Einarsdóttir, Björn Jóhannesson, Kristinn Ólafsson og Þóra Sif Friðriksdóttir, áheyrnarfulltrúi.

Fundarritari: Svava Sverrisdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs.

Dagskrá:

1. 2026060123 – Nýtt stjórnskipulag Seltjarnarnesbæjar

Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar.

2. 2026090147 – Betri samgöngur – bréf v. fjárlagafrumvarps 2027

Fyrir fundinum liggur fyrir bréf frá Betri samgöngum og áhrifa fjárlagafrumvarps 2027. Í því kemur fram að framlag ríkisins til Betri samgangna mun lækka tímabundið um 2. ma.kr

Bæjarráð mun bregðast við bréfinu í samráði við önnur sveitarfélög.

3. 2024020210 – Bygging nýs leikskóla

Málinu frestað til næsta fundar.

Bæjarráð óskar eftir að fá formlega kynningu á verkefninu frá bæjarstjóra og að hann skipuleggi heimsókn á byggingarstað.

4. 2026090033 – Lántaka Lánasjóður sveitarfélaga

Fjármálastjóri leggur fram yfirlit yfir þá kosti sem eru í boði til að ljúka langtímafjármögnun fyrir nýbyggingu leikskólans, á árinu.

Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra að taka lán í LSF32, 355 m.kr. Heimild frá bæjarstjórn til lántökunnar var samþykkt fyrr á árinu og liggur fyrir.

Baldur Pálsson kemur inn á fundinn.

5. 2026090183 – Aðgerðaáætlun Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins 2026 – 2030 - Umsögn

Baldur Pálsson fer yfir aðgerðaráætlunina og hvað í henni felst.

Bæjarráð samþykkir aðgerðaáætlunina.

Baldur víkur af fundi.

6. 2026090044 – Forsendur rammaáætlun 2027

Fjármálastjóri leggur forsendur sem voru lagðar til grundvallar við rammaáætlun 2027, til kynningar og fer yfir hvað hefur breyst varðandi hana síðustu daga.

 

Fundi slitið: 9:42

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?