Fara í efni

Bæjarráð

198. fundur 28. september 2026 kl. 08:00 - 10:06 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

198. fundur bæjarráðs

Haldinn í fundarsal að Austurströnd 5, mánudaginn 28. september 2026 kl. 08:00.

Mættir: Elísabet Einarsdóttir, Björn Jóhannesson, Kristinn Ólafsson, Þór Sigurgeirsson og Skafti Harðarson, áheyrnarfulltrúi.

Fundarritari: Svava Sverrisdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs.

Dagskrá:

1. 2026060123 – Tillaga formanns bæjarráðs - Bókasafn

Formaður bæjarráðs leggur fram tillögu þess efnis að gerð verði úttekt á starfsemi Bókasafns Seltjarnarness, með því markmiði að ná fram hagræðingu í rekstri safnsins.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að koma tillögunni til sviðsstjóra.

2. 2026060123 – Tillaga formanns bæjarráðs - Sundlaug

Formaður bæjarráðs leggur fram tillögu þess efnis að gerð verði útttekt á rekstri Sundlaugar Seltjarnarness, með því markmiði að ná fram hagræðingu í rekstri laugarinnar.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að koma tillögunni til sviðsstjóra.

3. 2026060123 – Tillaga formanns bæjarráðs - Selið

Formaður bæjarráðs leggur fram tillögu þess efnis að gerð verði útttekt á rekstri Selsins, frístundamiðstöð Seltjarnarness, með því markmiði að ná fram hagræðingu í rekstri frístundamiðstöðvarinnar.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að koma tillögunni til sviðsstjóra.

4. 2026060123 – Tillaga um 2. áfanga aðhaldsaðgerða: ráðningarbann, yfirvinnubann og lækkun þóknana til bæjarstjórnar

Formaður bæjarráðs leggur fram tillögu um aðgerðir til að draga úr kostnaði og ná fram hagræðingu í rekstri bæjarins. Aðgerðirnar fela m.a. í sér þess efnis að sett verið á tímabundið ráðningar- og yfirvinnubann og að laun bæjarstjórnarfulltrúa verið lækkuð og greitt verði eftir mætingu bæjarfulltrúa á bæjarstjórnarfundi. Stefnt er að þessi breyting skili að lágmarki 16% hagræðingu.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að fylgja tillögunni eftir í starfssemi bæjarins.

5. 2025080267 – Mánaðaryfirlit janúar - júlí

Sviðsstjóri fjármálasviðs leggur fram mánaðaryfirlit yfir fyrstu sjö mánuði ársins.

 

Fundi slitið: 10:06

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?