Fara í efni

Bæjarstjórn

22. mars 2017

Miðvikudaginn 22. mars 2017 kl. 17:00 kom bæjarstjórn Seltjarnarness saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.

Mættir voru: Ásgerður Halldórsdóttir (ÁH), Bjarni Torfi Álfþórsson (BTÁ), Sigrún Edda Jónsdóttir (SEJ), Guðmundur Ari Sigurjónsson (GAS), Margrét Lind Ólafsdóttir (MLÓ) og Árni Einarsson (ÁE).

Magnús Örn Guðmundsson (MÖG) boðaði forföll.

Gunnar Lúðvíksson ritaði fundargerð í tölvu.

Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og vistaður á heimasíðu bæjarins.

Forseti bæjarstjórnar, Bjarni Torfi Álfþórsson setti fund og stjórnaði.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

  1. Fundargerð 46. fundar Bæjarráðs.

    Ákvörðun sem fram kemur í fundargerðinni sem er 1 tl. er staðfestur samhljóða.

    Til máls tóku: ÁE

    Fundargerð 47. fundar Bæjarráðs.

    Ákvarðanir sem fram koma í fundargerðinni sem eru 7tl. eru staðfestar samhljóða.

  2. Fundargerð 281. fundar Skólanefndar ásamt bréfi foreldrafélags Grunnskóla Seltjarnarness til Skólanefndar, dags. 13. mars 2017.

    Fundargerðin, ásamt bréfi lögð fram.

    Til máls tóku: SEJ, ÁE, GAS

  3. Fundargerð 411. fundar Fjölskyldunefndar.

    Fundargerðin lögð fram.

    Til máls tóku: MLÓ, GAS, ÁH, SEJ, BTÁ, ÁE

  4. Fundargerð 398. fundar Íþrótta- og tómstundanefndar.

    Fundargerðin lögð fram.

  5. Fundargerð 358. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

    Fundargerðin lögð fram.

  6. Fundargerð 439. fundar stjórnar SSH.

    Fundargerðin lögð fram.

  7. Fundargerð 261. fundar stjórnar Strætó bs.

    Fundargerðin lögð fram.

  8. a) Lögð var fram skýrsla vinnuhóps um þátttöku íbúa að rafrænu íbúalýðræði.

    Bæjarstjórn samþykkir að fara í rafrænt íbúalýðræði frá 1.1.2018. Vísað til bæjarráðs til frekari útfærslu.

    Til máls tóku: MLÓ, ÁH, BTÁ, GAS, ÁE

Fundi var slitið kl.: 17:31

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?