Fara í efni

Bæjarstjórn

05. apríl 2017

Miðvikudaginn 5. apríl 2017 kl. 17:00 kom bæjarstjórn Seltjarnarness saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.

Mættir voru: Ásgerður Halldórsdóttir (ÁH), Sigrún Edda Jónsdóttir (SEJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Guðmundur Ari Sigurjónsson (GAS), Magnús Rúnar Dalberg (MRD) og Árni Einarsson (ÁE).

Gunnar Lúðvíksson ritaði fundargerð í tölvu.

Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og vistaður á heimasíðu bæjarins.

Forseti bæjarstjórnar, Sigrún Edda Jónsdóttir setti fund og stjórnaði.

Undir lið 1 mættu endurskoðendur bæjarins, Auðunn Guðjónsson og Guðný Helga Guðmundsdóttir

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

  1. Lagður var fram ársreikningur Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2016, fyrri umræða.Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2016.

    Auðunn Guðjónsson og Guðný Helga Guðmundsdóttir endurskoðendur KPMG gerðu grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins, lykiltölum og endurskoðunarskýrslu.Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn og færði starfsmönnum bæjarins þakkir fyrir þeirra hlut í mun betri afkomu bæjarins en áætlanir gerðu ráð fyrir.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi Seltjarnarnesbæjar 2016 til annarrar og síðari umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar sem er 10. maí 2017.
    Til máls tóku: ÁE, GAS, MÖG, ÁH, SEJ
  2. Fundargerð 48. fundar Bæjarráðs.
    Ákvarðanir sem fram koma í fundargerðinni sem er 14 tl. er staðfestur samhljóða.Eftirfarandi málsrúmer í fundargerð Bæjarráðs nr. 48 voru borin upp til staðfestingar:Bæjarstjórn samþykkir lið 5. samhljóða.Bæjarstjórn samþykkir lið 6. samhljóða og staðfestir einnig fundargerðina.Til máls tóku: ÁE, GAS
  3. Fundargerð 59. fundar Skipulags- og umferðarnefndar.
    Fundargerðin lögð fram.
  4. Fundargerð 282. fundar Skólanefndar.
    Fundargerðin lögð fram.
    Til máls tóku: MÖG, GAS, SEJ
  5. Fundargerðir 122. og 123. fundar Veitustofnana.
    Fundargerðirnar lagðar fram.
  6. 440. og 441. fundir stjórnar SSH.
    Fundargerðirnar lagðar fram.
    Til máls tóku: ÁH, GAS, ÁH
  7. 372. fundur stjórnar SORPU bs.
    Fundargerðin lögð fram.
  8. 262. fundur stjórnar STRÆTÓ bs.
    Fundargerðin lögð fram.
  9. 848. fundur stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga.
    Fundargerðin lögð fram.
  10. a) Lögð var fram drög að samþykkt um gatnagerðargjald á deiliskipulögðum svæðum á Seltjarnarnesi.
    Til máls tóku: GAS, ÁE, ÁH

    b) Lögð var fram ályktun félags eldri borgara á Seltjarnarnesi v/kirkjugarðs í bæjarfélaginu.
    Bæjarstjórn vísar erindinu til Umhverfisnefndar.
    Til máls tóku: ÁH, ÁE

    c) Tillaga um nýja nefndarmenn í ÍTS og Skólanefnd lögð fram.
    Tilnefndir voru fyrir hönd Samfylkingar Seltirninga:

    ÍTS
    Aðalmaður: Gissur Ari Kristinsson, kt. 110293-2169, Melabraut 30.
    Varamaður: Guðmundur Ari Sigurjónsson, kt. 120988-2479, Suðurmýri 6.

    Skólanefnd:
    Aðalmaður: Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, kt. 210372-5399, Nesvegi 123.
    Varamaður: Margrét Lind Ólafsdóttir, kt. 131067-5509, Hofgörðum 21.
  11. Fundargerð 49. fundar Bæjarráðs.
    Bæjarstjórn staðfestir fundargerðina.

Fundi var slitið kl.: 18:32


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?