Fara í efni

Bæjarstjórn

20. desember 2019

Föstudaginn 20. desember 2019 kl. 12:00 kom bæjarstjórn Seltjarnarness saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.

Mættir voru: Ásgerður Halldórsdóttir (ÁH), Ragnhildur Jónsdóttir (RJ), Sigrún Edda Jónsdóttir (SEJ), Sigríður Sigmarsdóttir (SS), Karl Pétur Jónsson (KPJ), Guðmundur Ari Sigurjónsson (GAS) og Sigurþóra Bergsdóttir (SB).

Gunnar Lúðvíksson, fjármálastjóri, ritaði fundargerð í tölvu.

Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og vistaður á heimasíðu bæjarins.

Forseti bæjarstjórnar, Sigrún Edda Jónsdóttir setti fund og stjórnaði.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

  1. Fundargerð 96. fundar Skipulags- og umferðarnefndar.

    Eftirfarandi málsnúmer í fundargerð Skipulags- og umferðarnefndar nr. 96 voru borin upp til staðfestingar:

    Mál nr. 2018090207
    Heiti máls: Deiliskipulag fyrir Bygggarða - umsókn um breytingu á deiliskipulagi.
    Lýsing: Tillaga að breyttu deiliskipulagi Bygggarðasvæðis á Seltjarnarnesi. Endurauglýsing.
    Afgreiðsla: Nefndin samþykkir í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að endurauglýsa áður auglýsta tillögu að breyttu deiliskipulagi Bygggarðasvæðis. Ástæða endurauglýsingar eru breytingar sem gerðar voru á deiliskipulagi eftir fyrri auglýsingu 21. júní 2019. Breytingarnar felast í að nú er ekki gert ráð fyrir sameiginlegri bílageymslu miðsvæðis og fjöldi bílastæða lækkar úr 1,8 stæðum í 1,7 stæði á íbúð. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu Skipulags- og umferðarnefndar.

    Mál nr. 2019010347
    Heiti máls: Deiliskipulag Valhúsahæðar og aðliggjandi útivistarsvæða - Kirkjubraut 20 - uppbygging þjónustuíbúðar.
    Lýsing: Endurskoðuð verkefnalýsing lögð fram.
    Afgreiðsla: Nefndin vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar og samþykktar í samræmi við 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að gert er ráð fyrir byggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk á nýrri lóð við enda Kirkjubrautar, Kirkjubraut 20.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu Skipulags- og umferðarnefndar.

    Mál nr. 2019080032
    Heiti máls: Gönguleið um Eiðistorg – umferð um Suðurmýri.
    Lýsing: Niðurstaða kynningar og ábendingar frá íbúum.
    Afgreiðsla: Nefndin þakkar góðar ábendingar og viðbrögð frá íbúum. Að teknu tilliti til ábendinga frá íbúum og í samráði við samgönguverkfræðing vísar nefndin málinu óbreyttu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Nefndin ítrekar mikilvægi þess að breytingarnar komist til framkvæmda sem allra fyrst til að tryggja megi öryggi vegfarenda.
    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu Skipulags- og umferðarnefndar.
    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerðina sem er 3 tl.
    Til máls tóku: ÁH, GAS, KPJ, SB, SEJ

  2. Tillögur og erindi:
    a) Umsagnarbeiðni vegna tímabundið áfengisleyfi fyrir Ísak Runólfsson, Félagsheimili Seltjarnarness, lagt fram. 
    Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum og einn situr hjá.
    Bæjarstjórn leggur áherslu á að gætt verði að aldurtakmörkum og fólk skemmti sér fallega.

Fundi slitið kl. 12:16

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?