Fara í efni

Bæjarstjórn

966. fundur 24. maí 2023

966. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 24. maí kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.

Fundinn sátu: Þór Sigurgeirsson (ÞS), Ragnhildur Jónsdóttir (RJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Svana Helen Björnsdóttir (SHB), Guðmundur Ari Sigurjónsson (GAS), Sigurþóra Bergsdóttir (SB) og Karen María Jónsdóttir (KMJ).

Fundargerð ritaði: Ari Eyberg Sævarsson

Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og vistaður á heimasíðu bæjarins.

Ragnhildur Jónsdóttir setti fund og stjórnaði.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

1. Fundargerð 139. fundar Skipulags- og umferðarnefndar
Fundargerðin lögð fram.

Fundargerðin sem er í þremur liðum er samþykkt samhljóða af bæjarstjórn

Til máls tóku: SHB, GAS.

2. Fundargerð 326. fundar Skólanefndar
Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: RJ, KMJ, SB, ÞS og GAS.

3. Fundargerð 467. fundar Fjölskyldunefndar
Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: SB.

4. Fundargerð 557. fundar stjórnar SSH
Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð 41. eigendafundar Sorpu bs.
Fundargerðin lögð fram

Til máls tóku: SHB, GAS og KMJ.

6. Fundargerð 117. fundar Svæðisskipulagsnefndar
Fundargerðin lögð fram

7. Tillögur og erindi:

a) Umsagnarbeiðni-tækifærisleyfi íþróttafél. Gróttu v. skemmtanahalds 9. september næstkomandi.
Lagt fram til samþykktar

Samþykkt samhljóða af bæjarstjórn

b) Minnisblað frá bæjarstjóra varðandi breytingar á sorphirðuframkvæmd bæjarins lagt fram.

Breytingatillaga var samþykkt samhljóða af bæjarstjórn

Til máls tóku: ÞS, KMJ.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?