1008. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 11. júní 2025, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.
Fundinn sátu: Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Svana Helen Björnsdóttir (SHB), Hildigunnur Gunnarsdóttir (HG), Sigurþóra Bergsdóttir (SB), Karen María Jónsdóttir (KMJ) og Bjarni Torfi Álfþórsson (BTÁ).
Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir
Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og vistaður á heimasíðu bæjarins.
Magnús Örn Guðmundsson varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
1. Fundargerð 177. fundar bæjarráðs
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 7 töluliðum, samhljóða.
Til máls tók: ÞS
2. Fundargerð 478. fundar Fjölskyldunefndar
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Eftirfarandi liður í fundargerðinni er borinn upp til staðfestingar:
6. 2023110101 – Stefna í málefnum eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi
Fjölskyldunefnd samþykkir tillögu að stefnu í málefnum eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi og vísar til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu fjölskyldunefndar á lið 6, samhljóða.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 6 liðum, samhljóða.
Til máls tóku: HG og SB
3. Fundargerð 479. fundar Fjölskyldunefndar
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 1 lið, samhljóða.
4. Fundargerð 164. fundar Menningarnefndar
Fundargerðin lögð fram.
5. Fundargerð 340. fundar skólanefndar
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 6 liðum, samhljóða.
Til máls tóku: KMJ, ÞS og SB
6. Fundargerð 157. Skipulags- og umferðarnefndar
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Eftirfarandi liður í fundargerðinni er borinn upp til staðfestingar:
3. 2024070052 – Viðmiðunarregla fyrir girðingar
Komið hefur tillaga um að breyta lítillega þeim viðmiðum sem nefndin samþykkti nýverið.
Afgreiðsla: Lítillega breyttar viðmiðunarreglur samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu Skipulags- og umferðarefndar á lið 3, samhljóða.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 10 liðum, samhljóða.
Til máls tók: SHB
7. Fundargerð 164. Skipulags- og umferðarnefndar
Fundargerðin lögð fram til samþykktar..
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 1 lið, samhljóða.
8. Fundargerð 427. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
Fundargerðin lögð fram.
9. Fundargerð 138. fundar Svæðisskipulagsnefndar
Fundargerðin lögð fram.
10. Fundargerð 34. fundar heilbrigðisnefndar Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness
Fundargerðin lögð fram.
11. Fundargerð 980. stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.
12. Fundargerð 407. stjórnar Strætó bs.
Fundargerðin lögð fram.
Fundi slitið kl. 17:20