1020. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 11. febrúar 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.
Fundinn sátu: Ragnhildur Jónsdóttir (RJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Svana Helen Björnsdóttir (SHB), Sigurþóra Bergsdóttir (SB), Karen María Jónsdóttir (KMJ) og Björg Þorsteinsdóttir (BÞ).
Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.
Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og vistaður á heimasíðu bæjarins.
Ragnhildur Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
1. Fundargerð 188. fundar bæjarráðs
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 2 töluliðum, samhljóða.
2. Fundargerð 452. fundar íþrótta- og tómstundanefndar
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: RJ og ÞS
3. Fundargerð 344. fundar skólanefndar
Fundargerðin lögð fram.
4. Fundargerð 345. fundar skólanefndar
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku: SB, ÞS og RJ
5. Fundargerð 175. fundar veitustjórnar Seltjarnarness
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: SHB
6. 2020010474 – Endurskoðun á friðlýsingu Gróttu – tillaga að nýrri afmörkun friðlandsins við Gróttu og tillaga að nýjum friðlýsingarskilmálum fyrir friðlýsingu Gróttu og Seltjarnar
Á 1005. fundi bæjarstjórnar þann 23. apríl 2025 samþykkti bæjarstjórn samhljóða að tillaga starfshóps að nýjum friðlýsingarskilmálum Gróttu og Seltjarnar yrði kynnt og málið sett í viðeigandi lögbundinn farveg í samræmi við lög um náttúruvernd nr. 60/2013.
Tillagan, að teknu tilliti til þeirra athugasemda sem bárust, að nýrri afmörkun friðlandsins við Gróttu og friðlýsingarskilmálum fyrir friðlýsingu Gróttu og Seltjarnar er borin upp til samþykktar.
Tillagan er samþykkt í bæjarstjórn með 6 greiddum atkvæðum gegn 1.
Málinu er vísað í lögbundinn farveg.
Bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og óháðra:
Á vesturhluta Seltjarnarness eru einstæðar náttúruminjar og fjölbreytt fuglalíf. Þar er eitt fallegasta og fjölsóttasta útivistarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu. Ósnortin náttúran myndar eitt samfellt vistkerfi sem gegnir lykilhlutverki fyrir varp, fæðuöflun og hvíld fugla. Friðlýsing Bakkatjarnar, Gróttu, og nú einnig Seltjarnar, er mikilvægur liður í því að varðveita þessi mikilvægu verðmæti. Í friðlýsingu felst ákvörðun okkar Seltirninga um að nýta svæðið í óbreyttri mynd til framtíðar og hindra á sama tíma að því verði raskað með óafturkræfum framkvæmdum. Friðlýsing Seltjarnar er hluti af aðalskipulagi bæjarins frá 2015-2033 og deiliskipulagi svæðisins auk þess sem Suðurnesið ásamt strandlengju er á náttúruminjaskrá samkvæmt lögum. Umhverfisnefnd Seltjarnarnesbæjar hefur unnið á faglegan og þverpólitískan hátt að málinu í sex ár og nú liggur fyrir einróma tillaga nefndarinnar.
Magnús Örn Guðmundsson
Ragnhildur Jónsdóttir
Svana Helen Björnsdóttir
Sigurþóra Bergsdóttir
Karen María Jónsdóttir
Bókun bæjarstjóra:
Ég hef ávallt lagt mig fram um að hlusta á bæjarbúa varðandi mál sem eru til umfjöllunar hjá bænum og í bæjarstjórn. Það er ljóst að skiptar skoðanir eru á tillögu að friðlýsingu Seltjarnar allrar og í samtölum mínum við bæjarbúa hef ég bæði heyrt raddir þeirra sem eru fylgjandi tillögunni en ekki síður þeirra fjölmörgu sem vilja halda óbreyttri friðlýsingu í kringum Gróttu.
Það er mín skoðun að tillaga um friðlýsingu Seltjarnar gangi of langt og sé ekki til hagsbóta fyrir bæinn og bæjarbúa og því greiði ég ekki atkvæði með tillögunni. Ég virði hins vegar að sjálfsögðu lýðræðislega afgreiðslu málsins í bæjarstjórn þótt ég sé ekki sammála niðurstöðunni.
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri
Til máls tóku: RJ, ÞS, KMJ og SB
7. Fundargerð 621. fundar stjórnar SSH
Fundargerðin lögð fram.
8. Fundargerð 622. fundar stjórnar SSH
Fundargerðin lögð fram.
Eftirfarandi lið er vísað til afgreiðslu bæjarráðs og kemur síðar til afgreiðslu bæjarstjórnar:
2. Viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna – 2510016
Eftirfarandi lið í fundargerðinni er vísað til kynningar á vettvangi sveitarfélagsins:
3. Ofanflóðahættumat – 2510004
Til máls tóku: SB og ÞS
9. Fundargerð 13. fundar stefnuráðs byggðasamlaganna
Fundargerðin lögð fram.
Tillögur vinnuhóps til að mæta liggja fyrir. Í framhaldi kom póstur frá SSH 16. Janúar um afgreiðslu á vettvangi sveitarfélagsins og mun það verða tekið fyrir í bæjarráði og koma síðar fyrir bæjarstjórn.
10. Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.
11. Fundargerð 40. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness
Fundargerðin lögð fram.
12. Fundargerð 41. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness
Fundargerðin lögð fram.
13. Fundargerð 55. fundar eigendafundar Sorpu bs.
Fundargerðin lögð fram.
14. Fundargerð 420. fundar stjórnar Strætó bs.
Fundargerðin lögð fram.
15. Fundargerð 277. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Fundargerðin lögð fram.
Tillögur og erindi:
a) Gallup könnun – niðurstöður kynntar bæjarfulltrúm
Bæjarstjórn lýsir yfir ánægju yfir hvernig bæjarbúar eru að upplifa þjónustu sveitarfélagsins. Kynning mun koma til birtingar á miðlum bæjarfélagsins.
Fundi slitið kl.: 17:34