Fara í efni

Bæjarstjórn

1021. fundur 25. febrúar 2026 kl. 17:00 - 17:21 fundarsal á Bæjarskrifstofu Seltjarnarness

1021. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 25. febrúar 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.

Fundinn sátu: Ragnhildur Jónsdóttir (RJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Svana Helen Björnsdóttir (SHB), Bjarni Torfi Álfþórsson (BTÁ), Karen María Jónsdóttir (KMJ) og Björg Þorsteinsdóttir (BÞ).

Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.

Fundurinn var ekki sendur út eða tekinn upp vegna tæknilegra örðugleika.

Ragnhildur Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

1. Fundargerð 189. fundar bæjarráðs

Fundargerðin er lögð fram til samþykktar.

Eftirfarandi liðir í fundargerðinni eru lagðir fram til staðfestingar:

1. 2025050141 – Heimild til lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga

Ákvörðun um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga með veði í tekjum sveitarfélagsins:

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 720.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.

Til tryggingar láninu – þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði – samþykkir bæjarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.

Lánið er tekið til að fjármagna byggingu nýs leikskóla. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.

Jafnframt er Þór Sigurgeirssyni, bæjarstjóra, kt. 070467-8369, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Seltjarnarnesbæjar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs á 1. lið fundargerðarinnar samhljóða.

3. 20260030 – Samstarfssamningur um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna

Eftirfarandi erindi frá stjórn SSH, frá 5. febrúar s.l., liggur fyrir fundinum og óskað er eftir afgreiðslu bæjarráðs.

2. Viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna – 2510016

Sviðsstjórar velferðarsviða sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sóttu, undir forystu Reykjavíkurborgar, um styrk til mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna stofnsetningar miðlægs bráða- og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna á höfuðborgarsvæðinu. Fallist hefur verið á að veita styrk að fjárhæð 240.727.235 kr., og er honum ætlað að nýtast til launagreiðsla og kaupa á sérhæfðri ráðgjöf en ekki annars kostnaðar.

Framangreint var kynnt á 617. fundi stjórnar SSH og skrifstofu SSH þá falið að taka þátt í nánari útfærslu og samningagerð í tengslum við ofangreint verkefni í samvinnu við samráðshóp á sviði velferðarmála.

Nú eru fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna og drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps. Gerð er tillaga um að þeim verði vísað til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélaganna. Einnig liggja fyrir drög að samstarfsyfirlýsingu vegna þátttöku Barnaog fjölskyldustofu og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þessu verkefni

Þá liggja fyrir til kynningar styrkumsókn vegna verkefnisins og styrktarsamningur mennta- og barnamálaráðuneytis við Reykjavíkurborg, dags. 6. nóv. 2025.

Niðurstaða:

Stjórn SSH samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og er skrifstofu SSH falið að senda fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna og drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélaganna.

Bæjarráð samþykkir samstarfssamninginn samhljóða og vísar erindinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs á 3. lið fundargerðarinnar samhljóða.

6. 2026010310 – Viðbrögð við niðurstöðu ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs.

Tillaga vinnuhóps að útfærslu til að mæta ákvörðun ESA í máli nr. 81738, er lögð fram til samþykktar:

Í bréfi SSH, dagsett 16. janúar sl., eru lagðar fram niðurstöður ESA vegna tekjuskattsundanþágu SORPU bs. Lagt er til að bæjarstjórn samþykki að SORPU bs. verði heimilað að stofna tvö ný dótturfélög með takmarkaðri ábyrgð, nánar tiltekið Lok ehf. og Líf ehf., sem munu taka yfir efnahagslega starfsemi SORPU bs. Í því felst að Lok ehf. mun annast móttöku rekstrarúrgangs og rekstur urðunar og Líf ehf. mun annast rekstur GAJA og meðhöndlun lífræns úrgangs. Lögbundin starfsemi eigendasveitarfélaganna, þar með talin ábyrgð á farvegi úrgangs frá heimilum, verður áfram rekin innan SORPU bs. Með þessari útfærslu er sá rammi sem samið var um við ESA árið 2024 útfærður í framkvæmd, á grundvelli fyrri samþykkta eigenda.

Bæjarráð samþykkir tillöguna um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga SORPU bs., Líf ehf. og Lok ehf., samhljóða og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs á 6. lið fundargerðarinnar samhljóða.

Bókun formanns bæjarráðs undir 7. tölulið:

Formaður bæjarráðs ítrekar beiðni um að fá skýringu frá tryggingastærðfræðingi án frekari tafar.

Magnús Örn Guðmundsson

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 7 töluliðum, samhljóða.

Til máls tóku: SHB, ÞS og MÖG

2. Fundargerð 173. fundar skipulags- og umferðarnefndar

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Eftirfarandi liðir í fundargerðinni eru lagðir fram til samþykktar:

1. 2025110219 – Tjarnarstígur 3 – óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna nýs bílskúrs

Sótt er um leyfi til þess að auka nýtingarhlutfall lóðarinnar Tjarnarstígur 3-5 svo byggja megi bílageymslu (mhl. 02) á lóðarhluta Tjarnarstígs 3.

Höfundur leggur bæði fram teikningar sem sýna hinn fyrirhugaða bílskúr og uppdrátt af óverulegri deiliskipulagsbreytingu lóðarinnar þar sem nýtingarhlutfall er aukið úr 0,5 í 0,54. Bílageymslan verður á einni hæð, tvískipt fyrir íbúðir Tjarnarstígs 3. Tvær innkeyrsluhurðir og tvær inngangshurðir verða á byggingunni. Heildarstærð (brúttó) mhl. 02 verður 75,1 m². Tillagan er unnin af frumkvæði eiganda í Tjarnarstíg 3 en fyrir liggur samþykki allra skráðra eiganda Tjarnarstígs 5 en lóðinn er sameiginleg fyrir Tjarnarstíg 3 og 5.

Nýtingarhlutfall er 0,5 samkvæmt gildandi deiliskipulagi en verður 0,54 við breytinguna sem er nauðsynlegt svo nýta megi byggingarreit fyrir bílskúr.

Afgreiðsla: Nefndin samþykkir erindið. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna erindið í samræmi við 2. málsgrein 43.og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Tjarnarstígur 1, 2, 4 og 7. Ennfremur Tjarnarból 8, 10 og 12.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 1. lið fundargerðarinnar samhljóða.

2. 2025110066 – Steinavör 8 - byggingarleyfisumsókn

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt, 381 fermetra einbýlishús á lóðinni Steinavör 8. Uppdrættir sem lagðir eru fram eru í samræmi við nýlega grenndarkynningu. Ekki komu athugasemdir við grenndarkynningu hennar. Hámarks nýtingarhlutfalli lóðarinnar var breitt úr 0,4 í 0,48. Nýtingarhlutfall samkvæmt tillögunni verður 0,47. Fyrir liggur greinargerð frá Vegagerðinni um lágmarks kótahæð neðstu gólfplötu sem arkitektinn telur sig hafa uppfyllt. Á uppdráttum er sýndur er sjóvarnargarður framan við lóðina.

Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráform svalalokanna í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Seltjarnesbær áréttar við húsaeigandann að um þekkt flóðasvæði er að ræða sem þýðir að komið getur til skerðingar á bótrétti frá Náttúruhamfartryggingum Íslands við hugsanlegt tjón og bendir í því sambandi á 16. grein laga um Náttúruhamfaratryggingar Íslands nr. 55/1992.

Húseigandi skal sjá um að gera sjóvarnargarð í samræmi við aðaluppdrætti og bera allan kostnað við gerð hans. Skal uppbygginu hans að fullu lokið áður en lokaúttekt hússins fer fram.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 2. lið fundargerðarinnar samhljóða.

3. 2026010431 – Náttúruminjasafn Safnatröð 5 – breyting áður samþykktum uppdráttum

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum uppdráttum af Safnatröð 5. Húsið hefur tekið nokkrum breytingum meðan á byggingu þess stóð enda verður önnur starfsem í því en áætlað var í upphafi. Helstu breytingar á uppdráttum eru meðal annars þessar:

- Vörulyfta breytist í lyftu til fólksflutninga.

- Hætt er við skyggni og skjólvegg við verönd utanhúss og hurð bætt við á suðurhlið.

- Salerni og bað fyrir starfsfólk verður aðskilið frá salernum fyrir almenning.

- Vikið er frá ákvæðum byggingarreglugerðar um lágmarksfjölda salerna og eru færð rök fyrir ástæðu þess.

Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 3. lið fundargerðarinnar samhljóða.

4. 2025090145 – Unnarbraut 14 – óveruleg deiliskipulagsbreyting eftir kynningu

Grenndarkynningu á óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem fjallar um tilfærslu byggingarreits við Unnarbraut 14 er nú lokið. Athugasemd barst frá nágrönnum sem telja að verið sé að breyta lóðarmörkum gagnvart lóð sinni sem er við Melabraut. Athugasemdin er nokkuð ítarlega sett fram í 3 liðum og samantekt, þar sem vísað er í stjórnarskrá, stjórnsýslulög og skipulagslög. Deiliskipulagið er unnið á grunni gildandi deiliskipulags og eina breytingin sem er gerð, er að byggingarreitur er færður til á uppdrætti. Því mætti segja að mótmælin séu byggð á misskilningi. Til að taka af öll tvímæli um að ekki sé verið að breyta lóðarmörkum með tillögunni hefur skipulagshöfundur bætt inn eftirfarandi texta: „Tillagan hefur ekki gildi hvað varðar lóðamörk eða eignarhald á landi og fjallar eingöngu um tilfærslu á byggingarreit. Engar breytingar eru gerðar á lóðarmörkum frá gildandi deiliskipulag með breytingu þessari. Komi fram munur á lóðarmörkum á þessum uppdrætti og gildandi deiliskipulagi, gilda lóðamörk sem eru sýnd á gildandi deiliskipulagsuppdrætti.“

Afgreiðsla: Skipulagsnefnd telur að ekki sé ástæða til að taka frekar tillit til athugasemdarinnar eða gera frekari breytingar á tillögunni og telur að komið hafi verið til móts við athugasemd nágranna með þeim skýringum sem nú hefur verið bætt við.

Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010 með því að birta auglýsingu um gildistöku tillögunnar í B-deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 4. lið fundargerðarinnar samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 11 töluliðum, samhljóða.

3. Fundargerð 484. fundar fjölskyldunefndar

Fundargerðin lögð fram.

4. Fundargerð 453 (20.). fundar íþrótta- og tómstundanefndar

Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð 434. fundar samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Fundargerðin lögð fram.

6. Fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga

Fundargerðin lögð fram.

7. Fundargerð 89. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga

Fundargerðin lögð fram.

8. Fundargerð 623. fundar stjórnar SSH

Fundargerðin lögð fram.

9. Fundargerð 13. fundar stefnuráðs byggðasamlaganna

Fundargerðin lögð fram.

10. Fundargerð 143. fundar svæðisskipulagsnefndar

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tók, undir lið 2: KMJ

 

Fundi slitið kl.: 17:21

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?