1023. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 25. mars 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.
Fundinn sátu: Ragnhildur Jónsdóttir (RJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Svana Helen Björnsdóttir (SHB), Sigurþóra Bergsdóttir (SB), Karen María Jónsdóttir (KMJ), og Bjarni Torfi Álfþórsson (BTÁ).
Fundargerð ritaði: María Björk Óskarsdóttir
Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og fundagerð birt á heimasíðu bæjarins.
Ragnhildur Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
1. Fundargerð 190. fundar bæjarráðs
Fundargerðin er lögð fram til samþykktar.
Eftirfarandi liðir í fundargerðinni er lagðir fram til staðfestingar:
2. 2026030026 – Almenningssamgöngur – þjónustusamningur og samstarfssamningur
Drög að þjónustusamningi og samstarfssamningi vegna almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu lögð fram ásamt öðrum gögnum.
Eftirfarandi erindi frá stjórn SSH dags. 2. mars. 2026, liggur fyrir fundinum og óskað er eftir afgreiðslu bæjarráðs.
2409007 - Fyrirkomulag almenningssamgangna ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Fyrirliggjandi eru drög að þjónustusamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.
Jafnframt eru fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi milli Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Er gerð tillaga um að framangreindum samningsdrögum verði vísað til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélaganna og fylgt eftir þar með kynningum verði eftir því leitað.
Niðurstaða fundar:
Samþykkt.
Bæjarráð samþykkir aðild sveitarfélagsins að samningunum og felur bæjarstjóra að undirrita þjónustusamninginn fyrir hönd bæjarins. Vísað til samþykkis í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs á 2. lið fundargerðarinnar samhljóða.
4. 2025090275 – Nýtt fyrirkomulag leikskóla – tillaga að gjaldskrá
Tillaga að nýrri gjaldskrá leikskóla fyrir leikskóla á Seltjarnarnesi lögð fram.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með tveimur atkvæðum.
Bókun fulltrúa Samfylkingar og óháðra:
Fulltrúi Samfylkingar og óháðra situr hjá við afgreiðslu málsins. Að okkar mati hefði þurft að standa betur að undirbúningi breytinganna og eiga markvissara samtal við foreldra leikskólabarna á Seltjarnarnesi áður en þær voru lagðar fram.
Sveitarfélög víða um land hafa endurskoðað fyrirkomulag dvalartíma barna í leikskólum í kjölfar styttingar vinnuvikunnar og breytinga sem leiða af kjarasamningum, og víða hefur tekist að vinna slíkar breytingar í meiri sátt við foreldra.
Mikilvægt er að slíkar breytingar taki tillit til stöðu tekjulægri foreldra og séu metnar út frá jafnréttissjónarmiðum, svo þær lendi ekki verr á konum. Aðgengi barna að leikskólaþjónustu má ekki ráðast af fjárhagsstöðu foreldra.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs á 4. lið fundargerðarinnar með 4 atkvæðum. Fulltrúar Samfylkingar og óháðra situr hjá.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 11 liðum, samhljóða.
Til máls tóku: SB, BTÁ, ÞS, MÖG
2. Fundargerð 176. fundar Veitustjórnar
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku; SHB, SB
3. Fundargerð 174. fundar Skipulags- og umferðarnefndar
Eftirfarandi liðir í fundargerðinni er lagðir fram til staðfestingar:
1. 2025100188 – Steinavör 6 - byggingarleyfisumsókn
Nýlega var gerð óveruleg breyting á deiliskipulagi lóðarinnar þar sem nýtingarhlutfall var aukið úr 0,4 í 0,5. Var breytingin kynnt fyrir nágrönnum án þess að athugasemd bærist.
Núna eru lagðar fram teikningar Jóns Davíðs Ásgeirssonar arkitekts af viðbygginu við húsið. Um er að ræða 10,4 fermetra viðbót við anddyri sem kemur undir núverandi þak hússins, þar sem fyrir er svokallað B-rými.
Húsið er 524 fermetrar fyrir breytinguna samkvæmt skráningu hjá Landskrá en er í raun 537,9 fermetrar og verður 548,3 fermetrar. Nemur stækkunin 4,6 % miðað við skráða fermetra.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir áformin og beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 1. lið fundargerðarinnar samhljóða.
2. 202408085 – Nesbali 50 - byggingarleyfisumsókn
Sótt er um leyfi til að byggja 81,9 fermetra við húsið Nesbali 50 í samræmi við nýlega breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Nýtingarhlutfall lóðarinnar er 0,28 fyrir breytinguna en veður 0,4 við hana. Einnig eru gerðar ýmsar endurbætur á húsinu eins og að setja rennihurð, síkka glugga á norðurhlið, breyta innréttingum og breyta burðarkerfi lítillega.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir áformin og beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 2. lið fundargerðarinnar samhljóða.
5. 2026030081 – Austurströnd 5 - Breyting innanhúss vegna golfherma á 1. hæð
Lagðir fram uppdrættir af áður útfærðri breytingu á 1. hæð hússins Austurströnd 5.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir breytinguna og beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja hana í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 5. lið fundargerðarinnar samhljóða.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 10 liðum, samhljóða.
Til máls tóku: SB, SHB, ÞS, KMJ, BTÁ, RJ
4. Fundargerð 335. fundar Umhverfisnefndar
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku: KMJ, RJ, MÖG; SHB, ÞS, SB
Fyrirspurn barst frá Svönu Helen Björnsdóttur, beint til bæjarstjóra:
Hver er fjöldi félaga í Nesklúbbnum, golfklúbbi Seltjarnarness, með lögheimili á Seltjarnarnesi annars vegar og utan Seltjarnarness hins vegar? Hvert er hlutfall félaga með lögheimili á Seltjarnarnesi?
Viðbótarfyrirspurn barst frá Karen Maríu Jónsdóttur:
Hversu marga rástíma hafa félagar í Nesklúbbnum með lögheimili á Seltjarnarnesi nýtt sér síðastliðin 3 ár.
5. Fundargerð 435. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
Fundargerðin lögð fram.
6. Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.
7. Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.
8. Fundargerð 625. fundar SSH
Fundargerðin lögð fram.
9. Fundargerð 525. fundar Sorpu
Fundargerðin lögð fram.
Fundi slitið kl.: 18.07