Fara í efni

Bæjarstjórn

1026. fundur 13. maí 2026 kl. 17:00 - 17:10 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi

1026. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 13. maí 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.

Fundinn sátu: Ragnhildur Jónsdóttir (RJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir (DSO), Sigurþóra Bergsdóttir, Karen María Jónsdóttir (KMJ) og Guðmundur Gunnlaugsson (GG).

Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.

Fundurinn er tekinn upp og verður ásamt fundargerð birtur á heimasíðu bæjarins.

Ragnhildur Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

1. Fundargerð 193. fundar bæjarráðs

Fundargerðin er lögð fram til samþykktar.

Eftirfarandi liður í fundargerðinni er lagður fram til samþykktar:

3. 2026050020 – Sorphirða Seltjarnarnesbæjar – nýjar samþykktir

Uppfærðar samþykktir vegna sorphirðu Seltjarnarnesbæjar lagðar fram til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir samþykktirnar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs á 3. lið fundargerðarinnar samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 5 liðum, samhljóða.

Til máls tóku: SB og ÞS

2. Fundargerð 175. fundar skipulags- og umferðarnefndar

Fundargerðin er lögð fram til samþykktar.

Eftirfarandi liðir í fundargerðinni eru lagðir fram til staðfestingar:

1. 2025100181 – Sævargarðar 2 breyting á áður samþykktum aðaluppdráttum

Sótt er um breytingu á áður samþykktum uppdráttum af viðbyggingu við Sævargarða 2. Formi þaks er breytt og í stað flats þaks verður í mænisþak með 14° halla.

Afgreiðsla: Samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að fela byggingarfulltrúa að uppfæra þegar útgefið byggingarleyfi í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 1. lið fundargerðarinnar samhljóða.

2. 2023110002 – Sæbraut 4, uppfærð tillaga deiliskipulagsbreytingu vegna þaksvala

Borist hefur ný tillaga frá eigendum Sæbrautar 4 sem hafa hug á að gera svalir á bílskúrsþaki. Nýja tillagan gerir ráð fyrir að færa kvist sem gerður verður á þakinu, lengra inn á þakið og fjær Sólbraut 5. Þetta hefur í för með sér að útsýni nágranna verður núna meira og skuggavarp minna en það er í dag. Þá mun innsýn inn í garð nágranna með því að færa svalirnar fjær þeim verða óveruleg.

Afgreiðsla: Nefndin telur að komið sé til móts við áður fram komnar athugasemdir með þeim breytingum sem gerðar hafa verið í nýrri tillögu. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að fela byggingarfulltrúa að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010 með auglýsingu á gildistöku deiliskipulagbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 2. lið fundargerðarinnar samhljóða.

3. 2026030089 – Unnarbraut 14 - umsókn um byggingarleyfi

Sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingum við húsið Unnarbraut 14. Umsóknin er í samræmi við nýlega breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Byggt er við bílskúr hússins og notkun hans breytt þannig að hann verður hluti af íbúðarsvæði. Einnig er 15 fermetra geymsluskúr á lóðinni endurbyggður og einangraður.

Afgreiðsla: Samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 3. lið fundargerðarinnar samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 8 liðum, samhljóða.

3. Fundargerð 336. fundar umhverfisnefndar

Fundargerðin lögð fram.

4. Fundargerð 437. fundar samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga

Fundargerðin lögð fram.

6. Fundargerð 91. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga

Fundargerðin lögð fram.

7. Fundargerð 92. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga

Fundargerðin lögð fram.

8. Fundargerð 44. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness

Fundargerðin lögð fram.

Tillögur og erindi:

a. Skipan í kjördeildir

Listi fyrir starfsmenn í yfirkjörstjórn og undirkjörstjórnum í sveitarstjórnarkosningum 16. maí 2026 lagður fram til samþykktar.

Bæjarstjórn samþykkir listann um skipan í kjördeildir samhljóða.

 

Fundi slitið kl.: 17:10

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?