1027. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 27. maí 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.
Fundinn sátu: Ragnhildur Jónsdóttir (RJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Svana Helen Björnsdóttir, Sigurþóra Bergsdóttir, Karen María Jónsdóttir (KMJ) og Guðmundur Gunnlaugsson (GG).
Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.
Fundurinn er tekinn upp og verður ásamt fundargerð birtur á heimasíðu bæjarins.
Ragnhildur Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
1. Fundargerð 176. fundar skipulags- og umferðarnefndar
Fundargerðin er lögð fram til samþykktar.
Eftirfarandi liður í fundargerðinni er lagður fram til staðfestingar:
5. 2026050127 – Bollagarðar 107 – umsókn um óverulega deiliskipulagsbreytingu
Húseigendur við Bollagarða 107 leggja fram óverulega deiliskipulagsbreytingu sem heimilar viðbyggingu við húsið sem myndi stækka um allt að 14%. Nýtingarhlutfall er í dag 0,37 samkvæmt gildandi deiliskipulagi en yrði 0,43 við breytinguna.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir erindið og beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. málsgrein 43. og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Bollagarðar 101, 103, 105, 109, 111 og 115.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 5. lið fundargerðarinnar samhljóða.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 10 liðum, samhljóða.
2. Fundargerð 177. fundar veitustjórnar Seltjarnarness
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku: RJ og SHB
3. Fundargerð 280. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: RJ
4. Fundargerð 146. fundar svæðisskipulagsnefndar
Fundargerðin lögð fram.
Tillögur og erindi:
a) 2026050252 – Aukið gagnsæi með birtingu fylgigagna hvers fundarliðs með fundargerð
Tillaga: Aukið gagnsæi með birtingu fylgigagna hvers fundarliðs með fundargerð
Flutningsmaður: Karen María Jónsdóttir
Bæjarstjórn tekur jákvætt í aukið gagnsæi við birtingu fundargagna og felur bæjarstjóra að kanna tæknilega útfærslu, kostnað, persónuverndarsjónarmið og áhrif á stjórnsýslu vegna birtingar opinberra fylgigagna með fundargerðum bæjarstjórnar, ráða og nefnda. Niðurstöður verði lagðar fyrir nýja bæjarstjórn.
b) 2026050253 – Opið fjárhagsbókhald fyrir gagnsæja og stafræna stjórnsýslu
Tillaga: Opið fjárhagsbókhald fyrir gagnsæja og stafræna stjórnsýslu
Flutningsmaður: Karen María Jónsdóttir
Bæjarstjórn styður markmið um aukið gagnsæi í fjármálum sveitarfélagsins og felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að meta möguleika á auknu aðgengi að fjárhagsupplýsingum bæjarins í tengslum við innleiðingu nýs fjárhagskerfis líkt og staðið hefur til. Við matið verði horft til kostnaðar, tæknilegrar framkvæmdar, persónuverndar og reynslu annarra sveitarfélaga. Niðurstöður verði lagðar fyrir nýja bæjarstjórn.
c) 2026050255 – Rafræn skrá og yfirlit yfir störf, tillögur og bókanir hvers kjörins fulltrúa.
Tillaga: Rafræn skrá og yfirlit yfir störf, tillögur og bókanir hvers kjörins fulltrúa
Tillagan er dregin til baka.
d) 2026050256 – Skráning og birting á fjárhagslegum hagsmunatengslum kjörinna fulltrúa
Tillaga: Skráning og birting á fjárhagslegum hagsmunatengslum kjörinna fulltrúa
Flutningsmaður: Karen María Jónsdóttir
Bæjarstjórn tekur jákvætt í aukið gagnsæi varðandi hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og felur bæjarstjóra að leggja mat á hvernig unnt sé að samræma og formfesta skráningu hagsmunatengsla kjörinna fulltrúa, meðal annars með hliðsjón af reglum annarra sveitarfélaga, persónuverndarsjónarmiðum og núverandi verklagi sveitarfélagsins. Niðurstöður verði lagðar fyrir nýja bæjarstjórn.
Þakkir frá bæjarstjóra:
Kæru félagar í bæjarstjórn og ritari bæjarstjórnar.
Mig langar að þakka ykkur öllum sérstaklega fyrir ánægjulegt og faglegt samstarf auk vináttu á kjörtímabilinu.
Ég óska ykkur farsældar í ykkar störfum og góðs og gleðilegs sumars.
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri
Forseti bæjarstjórnar þakkaði bæjarfulltrúum, varabæjarfulltrúum, nefndarfólki, starfsfólki bæjarins og bæjarbúum fyrir samstarf og traust á kjörtímabilinu. Forseti óskaði jafnframt nýrri bæjarstjórn og starfsfólki bæjarins allra heilla í verkefnunum á komandi kjörtímabili.
Sigurþóra Bergsdóttir þakkaði gott samstarf á yfirstandandi kjörtímabili og óskar þeim sem nú kveðja velfarnaðar.
Magnús Örn Guðmundsson þakkaði samstarfið á undanförnum 24 árum.
Svana Helen Björnsdóttir þakkaði samstarfið á undanförnum árum
Karen María Jónsdóttir flutti þakkir og fór yfir tíma sinn í bæjarstjórn.
Guðmundur Gunnlaugsson flutti þakkir fyrir undanfarnar vikur og kveðju til næstu bæjarstjórnar.
Fundi slitið kl.: 17:42