1028. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 10. júní 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.
Fundinn sátu: Magnús Benediktsson (MB), Elísabet I. Einarsdóttir (EE), Björn Jóhannesson (BJ), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Sigurþóra Bergsdóttir (SB), Helgi Steinar Helgason (HH) og Skafti Harðarson (SH).
Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.
Fundurinn er tekinn upp og verður ásamt fundargerð birtur á heimasíðu bæjarins.
Sigurþóra tók til máls:
Ég vil byrja á því að óska bæjarfulltrúum til hamingju með kjörið, sérstaklega vil ég bjóða fimm nýja bæjarfulltrúa velkomna en hér erum við aðeins tvö sem áður höfum setið í bæjarstjórn Seltjarnarness.
Einnig við ég þakka fráfarandi bæjarstjórn fyrir góð störf.
Við upphaf þessa nýja kjörtímabils er rétt að minna okkur á þá ríku ábyrgð sem við berum sem kjörnir fulltrúar. Við erum fulltrúar allra bæjarbúa.
Þau sem hér fara með stjórn bæjarins í trausti rétt rúmlega helmings atkvæða ber skylda til að hlusta á aðra kjörna fulltrúa hér við borðið. Því hinn helmingur bæjarbúa kaus fulltrúa minnihlutans til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri
Lýðræðið virkar best þegar hlustað er á öll sjónarmið og ég skora á nýjan meirihluta að vinna þannig að raddir allra Seltirninga fái vægi í ákvörðunum okkar.
Ég óska okkur öllum allra heilla í okkar störfum næstu 4 árin.
Sigurþóra Bergsdóttir
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
1. Bréf yfirkjörstjórnar Seltjarnarness um úrslit sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026
Lagt var fram bréf yfirkjörstjórnar Seltjarnarness um úrslit sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026.
Á kjörskrá voru 3.539, þar af neyttu atkvæðisréttar 2.743, sem er 77.5% kjörsókn.
1.327 karla kusu og 1.417 konur og 2 hlutlaust kyn. Auðir og ógildir seðlar voru 44.
Boðnir voru fram þrír listar, D-listi Sjálfstæðisflokks, S-listi Samfylkingar og Viðreisnar og M-listi Miðflokks.
Úrslit voru að D-listi hlaut 1.401 atkvæði, S-listi hlaut 906 atkvæði og M-listi hlaut 392 atkvæði.
Kosningu hlutu:
Af D-lista:
Aðalmenn: Þór Sigurgeirsson, Elísabet Ingunn Einarsdóttir, Magnús Benediktsson og Björn Jóhannesson.
Varamenn: Lárus Gunnarsson, Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, Agnes Sólbjört Helgadóttir og Ásgeir Guðmundur Bjarnason.
Af S-lista:
Aðalmenn:
Sigurþóra Bergsdóttir og Kristinn Ólafsson.
Varamenn: Helgi Steinar Helgason og Auður Halla Rögnvaldsdóttir
Af M-lista:
Aðalmaður: Skafti Harðarsson
Varamaður: Þóra Sif Friðriksdóttir
2. Kosning forseta bæjarstjórnar samkvæmt 7. gr. bæjarmálasamþykktar
Magnús Benediksson kjörinn forseti með 6 atkvæðum. Einn situr hjá.
Elísabet Einarsdóttir kjörinn 1. varaforseti með 6 atkvæðum. Einn situr hjá.
Björn Jóhannesson kjörinn 2. varaforseti með 6 atkvæðum. Einn situr hjá.
Nýkjörinn forseti bæjarstjórnar tók við fundarstjórn.
Magnús tók til máls:
Ágæti bæjarstjóri, bæjarfulltrúar og Seltirningar.
Ég vil fyrst og fremst byrja á því að þakka fráfarandi bæjarstjórn kærlega fyrir vinnu sína í þágu Seltirninga, og þá sérstaklega Ragnhildi, Magnúsi og Svönu. Þið stóðuð ykkur með prýði á síðasta kjörtímabili og það verður mikill missir af ykkur.
Að sama skapi langar mig að þakka hæstvirtum bæjarstjóra fyrir hans vinnu á síðasta kjörtímabili, en hann mun leiða skútuna áfram með öflugu og fersku fólki í brúnni.
Að gefa kost á sér er ekki auðveld ákvörðun. Ég átti í miklum ráðleggingum við mína nánustu, og þá sérstaklega við hana Hildi mína. Í september fengum við þær hamingjufréttir að barn væri á leiðinni. Þessi frétt varð til þess að ég ákvað þá að gefa alls ekki kost á mér, enda lítið barn á leiðinni. Eftir því sem tíminn leið og fréttirnar um komu litla drengsins urðu raunverulegri og raunverulegri snerist þessi skoðun svo við.
Það var vitað mál að leikskólavandinn í sveitarfélaginu vóg þungt á mörgum foreldrum og gat ég ekki ímyndað mér að vera í þeirra stöðu og hugsaði með mér að það hlýti að vera eitthvað sem hægt væri að gera. Eftir miklar ráðleggingar við mitt besta fólk ákvað ég að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Þáttakan var góð. Átta manns buðu sig fram og tæplega 800 manns kusu og höfðu bein lýðræðisleg áhrif á uppröðun framboðslistans.
Þegar rykið hafði sest eftir prófkjörsbaráttuna var næsta verk að bretta upp ermar og sigra sveitarstjórnarkosningar, sem við heldur betur gerðum. Síðustu sex til sjö mánuðir hafa því einkennst af kosningum og hugurinn algjörlega verið þar. Ég vil því aftur fá að nýta tækifærið og þakka henni Hildi kærlega fyrir þolinmæðina og stuðninginn.
Kosningabaráttan var skemmtileg og öflug. Ég vil þakka mótframbjóðendum mínum kærlega fyrir baráttuna. Það er ljóst að þessi árangur hefði aldrei náðst hefði það ekki verið fyrir þá ótal sjálfboðaliða sem lögðu hönd á plóg og vil ég einnig þakka þeim kærlega fyrir.
Málefni barnafjölskyldna skipta mig höfuðmáli, enda ekki annað hægt þar sem ég tilheyri sjálfur þeim hópi. Við erum að byggja stórglæsilegan leikskóla sem hefur verið helsta kosningamál Sjálfstæðismanna, og hann verður kominn í gagnið haustið 2027. Því miður eru nokkrar barnafjölskyldur sem standa frammi fyrir því að koma ekki barni inn á leikskóla í haust. Við viljum veita þeim stuðning og hjálpa þeim að brúa bilið, en það munum við gera með biðlistagreiðslum.
Umhverfið skiptir mig miklu máli, en ég varði öllum mínum sumrum sem krakki í Austur-Húnavatnssýslu á meðan foreldrar mínir voru að byggja upp gamalt eyðibýli. Þar var ég umvafinn náttúru og þeim gæðum sem henni fylgja. Ég veit því að það er ekki sjálfsagt að búa við slík náttúrugæði eins og hér á Seltjarnarnesi og mun ég því sem bæjarfulltrúi aldrei gleyma hagsmunum náttúrunnar í mínum ákvörðunum.
Eins og okkur öllum er ljóst eru fjölmörg verkefni fram undan. Við ætlum okkur að ná saman rekstri sveitarfélagsins, opna félagsheimilið á kjörtímabilinu, setja á laggirnar biðgreiðslur fyrir barnafjölskyldur sem komast ekki inn á leikskóla, endurskoðun á samgöngusáttmálanum, laga skólana, gera skólalóðirnar betri, fara í uppbyggingu á útsýnispallinum á valhúsahæð og svo margt margt fleira.
Kæru Seltirningar, ég þakka ykkur enn og aftur fyrir traustið. Ég er opin bók og það er alltaf hægt að leita til mín.
Kær kveðja og virðingarfyllst,
Magnús Benediktsson
3. Kosning samkvæmt 56. gr. bæjarmálasamþykktar
Eftirtaldir fulltrúar eru tilnefndir af D-lista, S-lista og M-lista.
Ráð og nefndir sem kosin eru til eins árs:
I. Bæjarráð:
Aðalmaður:
D – Elísabet Einarsdóttir, formaður
D – Björn Jóhannesson, varaformaður
S – Kristinn Ólafsson
M – Skafti Harðarson, áheyrnarfulltrúi
Varamaður:
D – Magnús Benediksson
D – Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir
S – Sigurþóra Bergsdóttir
Ráð og nefndir sem kosin eru til tveggja ára:
II. Stjórn Sorpu:
Aðalmaður:
D - Björn Jóhannesson
Varamaður:
D - Magnús Benediktsson
III. Stjórn Strætó BS:
Aðalmaður:
D - Elísabet Ingunn Einarsdóttir
Varamaður:
D - Magnús Benediktsson
Fastanefndir sem eru kjörnar til fjögurra ára.
IV. Fjölskyldunefnd:
Aðalmaður:
D – Magnús Benediksson formaður
D – Elísabet Einarsdóttir
D – Anna Björg Erlingsdóttir
S – Björg Þorsteinsdóttir
M – Ástríður S. Jónsdóttir
Varamaður:
D – Anna María Gísladóttir
D – Lilja Pálsdóttir
D – Ásgeir Bjarnason
S – Áslaug Eva Björnsdóttir
M – Jóhanna S. Sveinsdóttir
V. Íþrótta- og tómstundanefnd:
Aðalmaður:
D – Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, formaður
D – Pétur Már Harðarson, varaformaður
D – Elísabet Einarsdóttir
S – Kristín Edda Óskarsdóttir
M – Jóhanna S. Sveinsdóttir
Varamaður:
D – Björn Jóhannesson
D – Örn Viðar Skúlason
D – Ásgeir Bjarnason
S – Halla Helgadóttir
M – Þóra Sif Friðriksdóttir
VI. Yfirkjörstjórn:
Aðalmaður:
Árni Ármann Árnason, formaður
Erlendur Gíslason
Gunnlaugur Ástgeirsson
VII. Menningarnefnd:
Aðalmaður:
D – Þórdís Sigurðardóttir, formaður
D – Elísabet Einarsdóttir, varaformaður
D – Björn Jóhannesson
S – Halla Helgadóttir
M – Guðrún Jónsdóttir
Varamaður:
D – Magnús Benediksson
D – Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir
D – Anna Björg Erlingsdóttir
S – Auður Halla Rögnvaldsdóttir
M – Þóra Sif Friðriksdóttir
VIII: Skipulags- og umferðarnefnd
Aðalmaður:
D – Björn Jóhannesson, formaður
D – Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, varaformaður
D – Grétar Dór Sigurðsson
S – Helgi Steinar Helgason
M – Hannes Tryggvi Hafstein
Varamaður:
D – Magnús Benediksson
D – Örn Viðar Skúlason
D – Anna Björg Erlingsdóttir
S – Egill Ö. Hermannsson
M – Guðmundur J. Gíslason
IX. Skólanefnd:
Aðalmaður:
D – Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, formaður
D – Elísabet Einarsdóttir, varaformaður
D – Pétur Már Harðarson
S – Áslaug Eva Björnsdóttir
S – Auður Halla Rögnvaldsdóttir
Varamaður:
D – Thelma Wilson
D – Magnús Benediktsson
D – Björn Jóhannesson
S – Kristín Edda Óskarsdóttir
S – Halla Helgadóttir
X. Umhverfisnefnd:
Aðalmaður:
D – Grétar Dór Sigurðsson, formaður
D – Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, varaformaður
D – Björn Jóhannesson
S – Garðar Svavar Gíslason
M – Hákon R. Jónsson
Varamaður:
D – Lilja Pálsdóttir
D – Örn Viðar Skúlason
D – Magnús Benediksson
S – María Stefánsdóttir
M – Hannes Tryggvi Hafstein
XI. Stjórn Veitustofnana:
Aðalmaður:
D – Örn Viðar Skúlason, formaður
D – Elísabet Einarsdóttir, varaformaður
D – Björn Jóhannesson
S – Egill Ö. Hermannsson
M – Skafti Harðarson
Varamaður:
D – Magnús Benediksson
D – Þór Sigurgeirsson
D – Ásgeir Bjarnason
S – Garðar Svavar Gíslason
M – Guðmundur J. Gíslason
Skipun í samstarfsnefndir til fjögurra ára:
XII. Almannavarnarnefnd:
Aðalmaður:
D – Þór Sigurgeirsson
D – Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir
Varamaður:
D – Magnús Benediksson
S – Kristinn Ólafsson
XIII. Stjórn samstarfsnefndars Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins:
Aðalmaður:
D – Magnús Benediksson
Varamaður:
D – Björn Jóhannesson
XIV. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands:
Aðalmaður:
D – Þór Sigurgeirsson
Varamaður:
D – Magnús Benediksson
XV. Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins:
Aðalmaður:
D – Þór Sigurgeirsson
Varamaður:
D – Björn Jóhannesson
XVI. Heilbrigðisnefnd Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness:
Aðalmaður:
D – Ásgeir Bjarnason
Varamaður:
D – Magnús Benediksson
XVII. Landsþing sambands ísl. sveitarfélaga:
Aðalmaður:
D – Þór Sigurgeirsson
S – Kristinn Ólafsson
Varamaður:
D – Magnús Benediksson
S – Sigurþóra Bergsdóttir
XVIII. Stefnuráð byggðasamlaga SSH, Strætó bs. og Sorpu bs.:
Aðalmaður:
D – Þór Sigurgeirsson
S – Sigurþóra Bergsdóttir
Varamaður:
D – Ásgeir Bjarnason
S – Kristinn Ólafsson
XIX. Svæðisskipulagsráð SSH:
Aðalmaður:
D – Magnús Benediksson
S – Helgi Steinar Helgason
Varamaður:
D – Ásgeir Bjarnason
S – Kristinn Ólafsson
XX. Öldungaráð:
Aðalmaður:
D – Petrea Ingibjörg Jónsóttir
D – Magnús Benediksson
D – Anna Björg Erlingsdóttir
S – Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir
Varamaður:
D – Ásgeir Bjarnason
D – Anna María Gísladóttir
D – Þór Sigurgeirsson
S – Kristinn Ólafsson
XXI. Notendaráð fyrir fatlað fólk:
Aðalmaður:
D – Magnús Benediksson
S – Björg Þorsteinsdóttir
Varamaður:
D – Anna Björg Erlingsdóttir
S – Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir
XXII. Stjórn Markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins:
Aðalmaður:
D – Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir
Varamaður:
D – Elísabet Einarsdóttir
XXIII. Hjúkrunarheimilið EIR fulltrúaráð:
Aðalmaður:
D – Petrea Ingibjörg Jónsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir tilnefningarnar samhljóða.
4. Breytingar á bæjarmálasamþykkt
Forseti bæjarstjórnar leggur til að dagskrárliðnum verið frestað.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að dagskrárlið verði frestað til næsta fundar bæjarstjórnar þann 24. næstkomandi.
5. Ráðning bæjarstjóra skv. 57. gr. bæjarmálasamþykktar
Þór Sigurgeirsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjórann þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör.
Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarstjórn.
Forseti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkir að ráða Þór Sigurgeirsson, til að gegna starfi bæjarstjóra Seltjarnarness, kjörtímabilið 2026 - 2030.
Formanni bæjarráðs er falið að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin, sbr. 2. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga. Samningurinn skal lagður fyrir bæjarráð og til staðfestingar í bæjarstjórn á næsta fundi sem verður 24. júní.
Tillagan var samþykkt með 3 atkvæðum, en 3 sátu hjá.
Bókun frá S lista og M lista:
Vegna erfiðrar fjárhagsstöðu Seltjarnarnesbæjar telja fulltrúar S- og M-lista réttara að ráða faglegan bæjarstjóra með sterkan rekstrarlegan bakgrunn til að snúa við rekstri bæjarins.
Þá leggjum við ríka áherslu á að ráðningarsamningurinn taki mið af þessari alvarlegu fjárhagsstöðu og að launakjör sem um verða samin verði hófleg.
Sigurþóra Bergsdóttir
Helgi Steinar Helgason
Skafti Harðarson
Til máls tóku: SB og ÞS
6. Fundargerð 347. fundar skólanefndar
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku: ÞS og SB
7. Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.
8. Fundargerð 999. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.
9. Fundargerð 627. fundar stjórnar SSH
Fundargerðin lögð fram.
10. Fundargerð 628. fundar stjórnar SSH
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: ÞS
11. Fundargerð 281. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: ÞS
Tillögur og erindi:
a) Beiðni varabæjarfulltrúa um tímabundna lausn frá störfum
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða beiðni Lárusar um tímabundna lausn frá störfum í bæjarstjórn Seltjarnarness, nefndarstarfa og annarra trúnaðarstarfa fyrir bæjarstjórn. Lausnin varir frá og með 1. ágúst 2026 og varir í allt að tvö ár.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl.: 17:43