Fara í efni

Bæjarstjórn

1029. fundur 24. júní 2026 kl. 17:00 - 17:43 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi

1029. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 24. júní 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.

Fundinn sátu: Magnús Benediktsson (MB), Elísabet I. Einarsdóttir (EE), Björn Jóhannesson (BJ), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Kristinn Ólafsson (KÓ), Sigurþóra Bergsdóttir (SB) og Skafti Harðarson (SH). 

Dagbjört Oddsdóttir (DO) kom inn undir lið 2. 

Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.

Fundurinn er tekinn upp og verður ásamt fundargerð birtur á heimasíðu bæjarins.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

1. Tillaga um nýja bæjarmálasamþykkt um stjórn Seltjarnarnesbæjar – fyrri umræða

Formaður bæjarráðs leggur fram tillögu að nýrri bæjarmálasamþykkt um stjórn Seltjarnarnesbæjar, sem kemur í stað eldri bæjarmálasamþykktar nr. 831 frá 2013, til fyrri umræðu.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar, sem verður haldinn þann 1. júlí 2026, samhljóða.

Bókun formanns bæjarráðs:

Forseti bæjarstjórnar, kæru bæjarfulltrúar.

Með leyfi forseta langar mig að segja nokkur orð áður en ég vík að málinu sjálfu.

Þetta er í fyrsta sinn sem ég stíg í pontu sem kjörinn bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs og því eru þetta ákveðin tímamót fyrir mig persónulega.

Ég vil því byrja á að þakka það traust sem mér hefur verið sýnt. Það er mikill heiður að fá að starfa fyrir íbúa Seltjarnarness og jafnframt mikil ábyrgð, sem ég tek af auðmýkt og þakklæti.

Ég vil einnig óska öllum nýkjörnum bæjarfulltrúum innilega til hamingju með kjörið og þakka þeim fyrir málefnalega og uppbyggilega kosningabaráttu. Það er mín upplifun að umræðan hafi einkennst af virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum og áherslu á málefnin sjálf. Ég vona að sá andi fylgi okkur inn í þetta kjörtímabil.

Það er einlægur vilji okkar að vinna málin í góðri sátt og samvinnu. Við eigum öll sameiginlegra hagsmuna að gæta þegar kemur að framtíð Seltjarnarness og ég tel afar mikilvægt að við nýtum ólíka reynslu, þekkingu og sýn til að ná sem bestum árangri fyrir bæjarbúa.

Sem liður í því höfum við þegar hafið undirbúning að samskiptasáttmála og endurskoðun siðareglna kjörinna fulltrúa. Okkar von er að sú vinna verði unnin í góðu samstarfi allra flokka og verði traustur grunnur að samstarfi okkar á komandi kjörtímabili.

Kæru bæjarfulltrúar.

Í kosningabaráttunni lögðum við ríka áherslu á umbætur í stjórnsýslu og rekstri. Við töldum mikilvægt að fara yfir hvernig hægt væri að styrkja stjórnsýslu bæjarins, bæta yfirsýn, skýra ábyrgð og tryggja að sveitarfélagið væri sem best í stakk búið til að mæta þeim áskorunum sem fram undan eru.

Verkefni sveitarfélaga verða sífellt umfangsmeiri og flóknari. Á sama tíma þurfum við að gæta að ábyrgum rekstri, góðri þjónustu og skýrri forgangsröðun verkefna.

Það er ábyrgð okkar sem kjörinna fulltrúa að tryggja að stjórnsýslan þróist stöðugt í takt við tímann og að skipulag hennar styðji sem best við þau verkefni sem sveitarfélagið sinnir.

Málið sem hér liggur fyrir í dag er fyrsta stóra skrefið í þeirri vegferð sem við lögðum upp með í kosningabaráttunni.

Við höfum verið skýr með að við teljum mikilvægt að ráðast í umfangsmiklar breytingar á stjórnsýslu og rekstri bæjarins.

Breytingarnar á bæjarmálasamþykktinni og nefndakerfi bæjarins eru fyrsta skrefið í þeirri vinnu.

Þær leggja grunn að skýrum ferlum, bættri yfirsýn og öflugri stjórnsýslu og skapa um leið sterkari umgjörð fyrir þær umbætur og verkefni sem fram undan eru á kjörtímabilinu.

Annars vegar er um að ræða nauðsynlegar uppfærslur á samþykktinni í samræmi við breytingar á lögum og þróun stjórnsýslu á undanförnum árum. Einnig eru lagðar til ýmsar einfaldanir á samþykktinni þar sem ákvæði sem ekki eiga lengur heima í slíkri samþykkt eru felld út eða uppfærð.

Stærsta breytingin snýr að nefndakerfi bæjarins.

Tillögurnar hafa verið vel ígrundaðar og byggja á umfangsmikilli vinnu. Við höfum farið yfir reynslu undanfarinna ára, skoðað hvernig sambærileg sveitarfélög hafa hagað sínu skipulagi, rætt við starfsfólk bæjarins og fengið ábendingar frá þeim sem hafa komið að nefndarstörfum og stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Í þeirri vinnu höfum við einnig leitast við að nýta þá reynslu og þekkingu sem er til staðar í hópnum á sviði stjórnunar, rekstrar og breytingastjórnunar. Markmiðið hefur verið að skoða með opnum huga hvernig hægt sé að styrkja stjórnsýsluna enn frekar, skýra ábyrgð, einfalda ferla og skapa betri umgjörð um mikilvæga málaflokka.

Ég vil jafnframt leggja áherslu á að þessar tillögur hafa verið kynntar minnihlutanum og ræddar í bæjarráði. Ég fagna því að viðbrögðin hafa almennt verið mjög jákvæð. Minnihlutinn hefur komið með gagnlegar ábendingar sem við höfum tekið til greina og unnið inn í tillögurnar. Þar má meðal annars nefna breytingar á skipan nefnda.

Markmið breytinganna er ekki einfaldlega að fækka nefndum.

Markmiðið er að samræma tengda málaflokka, styrkja nefndastarfið og bæta tengsl milli stjórnsýslu og kjörinna fulltrúa.

Við viljum að hver nefnd hafi skýrari ábyrgð á sínum málaflokki, betri yfirsýn yfir þau verkefni sem undir hana falla og aukna aðkomu að stefnumótun og eftirfylgni.

Með því að sameina tengda málaflokka undir færri og öflugri nefndum drögum við úr skörun, einföldum boðleiðir og minnkum líkur á að sömu mál fari á milli margra nefnda áður en þau komast til afgreiðslu. Slíkt skapar betri yfirsýn, skýrari ábyrgð og markvissari ákvarðanatöku.

Samhliða þessu felast í breytingunum einnig veruleg tækifæri til aukinnar skilvirkni. Fundum fækkar og þannig fer minni tími hjá starfsfólki og nefndarmönnum í undirbúning margra funda, fundarsetu, fundargerðir og eftirfylgni.

Það skapar meira svigrúm fyrir starfsfólk til að sinna sínum daglegu verkefnum.

Þetta snýst því ekki aðeins um nefndafjölda eða skipurit.

Þetta snýst um að skapa skýrari ábyrgð, betri yfirsýn og sterka umgjörð um stjórnun og starfsemi sveitarfélagsins.

Breytingarnar sem hér eru lagðar fram í dag eru fyrsta skrefið í umfangsmikilli vegferð sem við ætlum að ráðast í á þessu kjörtímabili. Vegferð sem snýst um að styrkja rekstur bæjarins, þróa stjórnsýsluna áfram og tryggja að Seltjarnarnes sé sem best í stakk búið til að mæta framtíðarverkefnum og áskorunum.

Ég vona að við getum unnið saman að þeirri vegferð í góðri sátt og samvinnu.

Það er einlægur vilji okkar að byggja þær breytingar sem fram undan eru á samráði, virðingu og með sameiginlega hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.

Ég hlakka til samstarfsins á komandi kjörtímabili og til þeirrar vinnu sem fram undan er.

Takk fyrir.

Elísabet Einarsdóttir, formaður bæjarráðs.

Til máls tóku: EE og SB

2. Fundargerð 194. fundar bæjarráðs.

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Þór Sigurgeirsson víkur af fundi og Dagbjört Oddsdóttir tók hans sæti.

Eftirfarandi liður í fundargerðinni er lagður fram til samþykktar:

2. 2026060120 – Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2026 - 2030

Drög að samningi við bæjarstjóra fyrir kjörtímabilið lagður fram til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir samninginn og felur formanni bæjarráðs að ganga frá samningi við bæjarstjóra.

Bæjarstjórn samþykkir ráðningarsamning við bæjarstjóra með fjórum atkvæðum, þrír sátu hjá.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs á 2. lið fundargerðarinnar með fjórum atkvæðum, þrír gegn.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 5 liðum, samhljóða.

Bókun minnihluta:

Fulltrúar S og M lista lýsa yfir þungum áhyggjum af því að rekstur Seltjarnarnesbæjar muni fara fram úr samþykktri fjárhagsáætlun, sérstaklega í ljósi ytri aðstæðna í samfélaginu.

Við viljum minna á að samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er óheimilt að víkja frá fjárhagsáætlun nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við hana. Þá er skýrt kveðið á um í lögunum að einnig beri að fylgja viðauka útfærð ákvörðun um það hvernig útgjöldunum verði mætt.

Það að reka sveitarfélag fram úr áætlun án þess að leggja fram viðauka stríðir gegn skýrum stjórnsýslureglum.

Við óskum þess vegna eftir því að á næsta fundi bæjarstjórnar verði gerð formleg grein fyrir stöðu á rekstri Seltjarnarnesbæjar og viðaukar lagðir fram ef þörf krefur.“

Kristinn Ólafsson, Sigurþóra Bergsdóttir, Skafti Harðarson

Til máls tók: SB

Þór Sigurgeirsson kemur inn á fund og Dagbjört Oddsdóttir víkur af fundi.

3. Fundargerð 178. fundar veitustjórnar

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: ÞS og EE

4. Fundargerð 424. fundar stjórnar Strætó bs.

Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð 425. fundar stjórnar Strætó bs.

Fundargerðin lögð fram.

6. Fundargerð 45. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar

Fundargerðin lögð fram.

7. Fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga

Fundargerðin lögð fram.

Tillögur og erindi:

a) Skipun áheyrnarfulltrúa til vara í bæjarráð

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða skipun Þóru Sif Friðriksdóttur, M – lista sem áheyrnarfulltrúa til vara í bæjarráði.

b) Tilnefning varamanna í kjörstjórn

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fresta þessum lið til næsta bæjarstjórnarfundar.

c) Tilnefning varamanns í stjórn SSH

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tilnefningu Elísabetar Einarsdóttur, D – lista, sem varamann í stjórn SSH.

d) Tilnefning fulltrúa á Landsþing sambands ísl. sveitarfélaga

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um Þór Sigurgeirsson og Elísabetu Einarsdóttur frá D – lista og Kristinn Ólafsson frá S – lista sem fulltrúa á Landsþing sambands ísl. sveitarfélaga, og Magnús Benediktsson og Björn Jóhannesson frá D – lista, og Sigurþóru Bergdóttur frá S – lista, til vara.

e) Dagsetningar bæjarstjórnarfunda ársins 2026

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að halda aukafund bæjarstjórnar þann 1. júlí 2026.

f) Tillaga um tilnefningu fulltrúa í samráðshóp v./Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins

Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum tillögu um Elísabetu Einarsdóttur sem fulltrúa í samráðshóp v./Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins, og Magnús Benediktsson til vara, einn sat hjá.

Önnur mál:

Til máls tóku: SH og ÞS

Fundi slitið kl.: 17:38

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?