Fara í efni

Bæjarstjórn

1030. fundur 01. júlí 2026 kl. 17:00 - 17:34 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi

1030. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 1. júlí 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.

Fundinn sátu: Magnús Benediktsson (MB), Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir (DSO), Björn Jóhannesson (BJ), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Sigurþóra Bergsdóttir (SB), Kristinn Ólafsson (KÓ) og Skafti Harðarson (SH).

Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

1. Tillaga um nýja bæjarmálasamþykkt um stjórn Seltjarnarnesbæjar – seinni umræða

Formaður bæjarráðs leggur fram tillögu að nýrri bæjarmálasamþykkt um stjórn Seltjarnarnesbæjar, sem kemur í stað eldri bæjarmálasamþykktar nr. 831 frá 2013, til seinni umræðu.

Forseti bar tillögu um nýja bæjarsmálasamþykkt til samþykktar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

Bókun Samfylkingar um bæjarmálasamþykkt:

Fulltrúar Samfylkingar, VIðreisnar og óháðra styðja þessar breytingar, við teljum að þær geti stuðlað að betri og skilvirkari stjórnsýslu.

Við leggjum áherslu á að nefndirnar fái raunveruleg verkefni og að allt nefndarfólk, líka fulltrúar minnihlutans, hafi raunveruleg áhrif. Til að tryggja það mælumst við til þess að allar nefndir vinni starfsáætlun og sinni frumkvæðisathugunum. Þær eiga ekki bara að taka við málum, heldur vera virkar í eftirliti með starfsemi bæjarins.

Lýðræðið virkar best þegar allir fá að taka virkan þátt og raddir allra nefndarmanna fá raunverulegt vægi.

Kristinn Ólafsson, Sigurþóra Bergsdóttir

Til máls tóku: DSO, SB og ÞS

2. Fundargerð 177. fundar skipulags- og umferðarnefndar

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Eftirfarandi liðir í fundargerðinni eru lagðir fram til samþykktar:

2. 2026060049 – Byggingarleyfi Austurströnd 12 - sælkeraverslun

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innréttingu á 1. hæð sem fela í sér að komið er fyrir aðstöðu fyrir nýja sælkeraverslun og færa skrifstofu í annað rými en það er nú. Einnig er sótt um að gera nýja kaffistofu og nýja starfsmannaaðstöðu, þar sem komið er fyrir starfsmannaskápum og nýju salerni fyrir starfsmenn. Þessar breytingar hafa engin áhrif á útlit né stærð húsnæðisins. Bætt er við brunahólfunum í kjallara og á 1. hæð samanber kafla um brunavarnir á uppdráttum.

Afgreiðsla: Samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn SHS. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 2. lið fundargerðarinnar, samhljóða.

7. 2026060017 – Húsnæðisáætlun 2026

Húsnæðisáætlun Seltjarnarnesbæjar vegna 2026 lögð fram.

Afgreiðsla: Húsnæðisáætlun Seltjarnarness 2026 lögð fram og samþykkt og nefndin beinir málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 7. lið fundargerðarinnar, samhljóða.

8. 2025110219 – Tjarnarstígur 3 – byggingarleyfi bílskúr

Lögð fram umsókn um byggingu bílskúrs á lóðainn Tjarnarstígur 3. Nýlega lauk grenndarkynningu á breytingu á deiliskipulagi sem var nauðsynleg til að gera byggingu bílskúrs mögulega. Nýtingarhlutfall var aukið úr 0,5 í 0,54 en byggingarreitur er sá sami og í upprunalegu deiliskipulagi Lambastaðahverfis frá 2012. Engin athugasemd barst en ein ábending kom frá veitum um rafstreng sem liggur í götu við lóðarmörk. Bílskúrinn er 75,1 fermetrar og skiptist í tvo hluta þar sem er einn fyrir hvora íbúð í húsinu. Húsið sem fyrir er á lóðinni er 221,5 fermetrar og heildar byggingarmagn á lóðinni verður 291,6 fermetrar.

Afgreiðsla: Samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 8. lið fundargerðarinnar, samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 9 liðum, samhljóða.

Til máls tók: KÓ

3. Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga fyrir árið 2025

Ársreikningurinn lagður fram.

Til máls tóku: SH og ÞS

4. Fundargerð 526. fundar stjórnar Sorpu bs.

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tók: SH

5. Fundargerð 527. fundar stjórnar Sorpu bs.

Fundargerðin lögð fram.

6. Fundargerð 528. fundar stjórnar Sorpu bs.

Fundargerðin lögð fram.

7. Fundargerð 529. fundar stjórnar Sorpu bs.

Fundargerðin lögð fram.

8. Fundargerð 530. fundar stjórnar Sorpu bs.

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tók: ÞS

Tillögur og erindi:

a) Skipun áheyrnarfulltrúa í skólanefnd vegna sumarleyfis bæjarstjórnar 2026

Tillaga frá M-flokki er að Hildigunnur Gunnarsdóttir verði skipuð áheyrnarfulltrúi fyrir hönd flokksins í skólanefnd þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa, og til vara verði Guðrún Jónsdóttir.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða skipun Hildigunni Gunnarsdóttur, M – lista sem áheyrnarfulltrúa og Guðrúnu Jónsdóttur, til vara, sem áheyrnarfulltrúa í skólanefnd vegna sumarleyfa.

b) Tilnefning varamanna í kjörstjórn

Lagt er til að eftirfarandi einstaklingar verði varamenn í kjörstjórn, á kjörtímabilinu 2026 – 2030:

• Fannar Freyr Ívarsson, Melabraut 1

• Hannes Lúðvíksson, Kirkjubraut 1

• Anna Katrín Stefánsdóttir, Unnarbraut 28b

Bæjarstjórn samþykkir tilnefninguna, samhljóða.

c) Breyting á skipun fulltrúa í öldungaráð

Tillaga að breytingu á skipan fulltrúa í öldungaráð Seltjarnarnesbæjar, kjörtímabilið 2026 – 2030.

Lagt er til að fækka áður skipuðum fulltrúum í öldungaráð um einn í aðalstjórn og einn í

Varastjórn og að eftirfarandi einstaklingar verði ekki í öldungaráðinu á komandi kjörtímabili:

• Anna Björg Erlingsdóttir, aðalmaður

• Þór Sigurgeirsson, varamaður

Bæjarstjórn samþykkir breytinguna, samhljóða.

d) Tilnefning fulltrúa í Stefnuráð byggðasamlaga SSH, Strætó bs. og Sorpu bs.

Lagt er til að Elísabet Einarsdóttir verði fulltrúi í Stefnuráði byggðasamlaga SSH, Strætó bs. og Sorpu bs.

Bæjarstjórn samþykkir tilnefninguna, samhljóða.

e) Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2026

Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Seltjarnarnesbæjar, sumarleyfi í júlí og til 26. ágúst 2026. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 21. ágúst 2026. Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga.

Samþykkt samhljóða.

Önnur mál:

Til máls tóku: ÞS og SB

 

Fundi slitið kl.: 17:34

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?