Fara í efni

Bæjarstjórn

1031. fundur 26. ágúst 2026 kl. 17:00 - 17:57 fundarherbergi að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

1031. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 26. ágúst 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.

Fundinn sátu: Magnús Benediktsson (MB), Elísabet Einarsdóttir (EE), Björn Jóhannesson (BJ), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Sigurþóra Bergsdóttir (SB), Kristinn Ólafsson (KÓ) og Skafti Harðarson (SH). 

Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

1. Fundargerð 195. fundar bæjarráðs

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í þremur liðum, samhljóða.

Til máls tóku: SB og EE

2. Fundargerð 178. fundar skipulags- og umferðarnefndar

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Eftirfarandi liðir í fundargerðinni eru lagðir fram til samþykktar:

1. 2026070093 – Sæbraut 4 byggingarleyfi kvistur og þaksvalir

Sótt er um að byggja kvist við húsið Sæbraut 4 og gera þaksvalir yfir bílskúr. Viðbyggingin er í samræmi við breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar sem var staðfest í apríl af bæjarstjórn á 1026. fundi, eftir að nefndin hafði samþykkt breytinguna á apríl fundi sínum. Í apríl bókaði nefndin:„Afgreiðsla: Nefndin telur að komið sé til móts við áður fram komnar athugasemdir með þeim breytingum sem gerðar hafa verið í nýrri tillögu. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að fela byggingarfulltrúa að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010 með auglýsingu á gildistöku deiliskipulagbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda.“ Bæjarstjórn bókaði á 1026 fundi: „Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 2. lið fundargerðarinnar samhljóða.“

Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 1. lið fundargerðarinnar, samhljóða.

3. 2026060017 – Neströð 7 – óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna stækkunar húss til vesturs

Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Vestursvæða vegna Nestraðar 7, svo unnt verði að stækka húsið um 11,9 fermetra miðað við það hús sem nú stendur á lóðinni í dag, þannig að húsið verði 265 fermetrar. Við þetta kemur útbygging út frá vesturhlið sem nær 60 sentímetra til vesturs og samkvæmt arkitektinum stendur hún á landi sem var raskað þegar grafið var fyrir viðbyggingu sem reist var árið 2003.

Umsögn Minjastofnunnar liggur fyrir en stofnun óskar eftir að fornleifafræðingur verði fenginn til að hafa eftirlit með framkvæmdinni.

Við þessa breytingu verður nýtingarhlutfall lóðarinnar 0,17 en lóðin er 1.595 fermetrar og hámarks nýtingarhlutfall lóðarinnar samkvæmt gildandi deiliskipulagi er 0,33.

Húsið er 221,8 fermetrar samkvæmt skráningu hjá Þjóðskrá Íslands en húsið sem stendur á lóðinni núna er 253,1 m2 þar sem það hefur verið stækkað án aðkomu byggingaryfirvalda gegnum árin.

Óskað er eftir að stækka það um 11,9 fermetra núna svo húsið á lóðinni verði 265 fermetrar.

Afgreiðsla: Samþykkt. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna breytingu á deiliskipulaginu, í samræmi við 2. málsgrein 43. og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Nesbali 32 og 34 og ennfremur Neströð 5.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 3. lið fundargerðarinnar, samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 9 liðum, samhljóða.

Til máls tóku: SB, BJ, ÞS og KÓ

 

3. Fundargerð 179. fundar skipulags- og umferðarnefndar

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Eftirfarandi liður í fundargerðinni er lagður fram til samþykktar:

1. 2026080072 – Tjarnarstígur 5 - byggingarleyfi bílskúr

Lögð fram umsókn um byggingu bílskúrs á lóðinni Tjarnarstígur 5 sem er tveggja íbúða hús. Nýlega lauk grenndarkynningu á breytingu á deiliskipulagi sem var nauðsynleg til að gera byggingu bílskúrs mögulega. Nýtingarhlutfall var aukið úr 0,5 í 0,54 en byggingarreitur er sá sami og í upprunalegu deiliskipulagi Lambastaðahverfis frá 2012.

Húsið er sambyggt við Tjarnarstíg 3 sem einnig inniheldur tvær íbúðir. Nýlega var samþykktur tvöfaldur bílskúr á lóð þess húss.

Sótt er um er einn 38,1 fermetrar bílskúr í hluta byggingarreitsins. Heimilt er að byggja tvo bílskúra í reitnum. Samþykki nágranna sem á líka byggingarheimild í hinum hluta reitsins liggur fyrir. Húsið sem fyrir er á lóðinni er 195,7 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Lóðin er 555 fermetrar og heildar byggingarmagn á lóðinni verður 233,8 fermetrar við breytinguna, sem gefur nýtingarhlutfallið 0,42.

Afgreiðsla: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að samþykkja byggingaráformin í samræmi við 1. málsgrein greinar 2.1.2 í byggingarreglugerð og greinar nr. 2.3.7 a., 2.3.7 b. og 2.3.8 í sömu reglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar umsækjandi hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 1. lið fundargerðarinnar, samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 6 liðum, samhljóða.

4. Fundargerð 486. fundar fjölskyldunefndar

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tók: MB

5. Fundargerð 629. fundar stjórnar SSH

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: KÓ og SÞ

6. Fundargerð 630. fundar stjórnar SSH

Fundargerðin lögð fram.

7. Fundargerð 631. fundar stjórnar SSH

Fundargerðin lögð fram.

8. Fundargerð 438. fundar samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Fundargerðin lögð fram.

9. Fundargerð 439. fundar samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: MB og ÞS

10. Fundargerð aukaaðalfundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga

Fundargerðin lögð fram.

11. Fundargerð 46. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tók: ÞS

12. Fundargerð 147. fundar svæðisskipulagsnefndar

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: MB, SH, ÞS og SB

Önnur mál:

Fyrirspurn um komu sjúkrabils á Seltjarnarness

Til máls tóku: SH og ÞS

Fyrirspurn um stefnu Seltjarnarnesbæjar varðandi húsnæði bæjarskrifstofu

Til máls tóku: SH og ÞS

 

Fundi slitið kl.: 17:57

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?