Fara í efni

Bæjarstjórn

1032. fundur 09. september 2026 kl. 17:00 - 17:57 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

1032. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 9. september 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 5.

Fundinn sátu: 

Magnús Benediktsson (MB), Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir (DSO), Björn Jóhannesson (BJ), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Sigurþóra Bergsdóttir (SB), Kristinn Ólafsson (KÓ) og Þóra Sif Friðriksdóttir (ÞSF).

Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

1. Fundargerð 196. fundar bæjarráðs

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 5 liðum, samhljóða.

Bókun bæjarstjóra við 6 mánaða uppgjör:

Líkt og fram kemur í óendurskoðuðu 6 mánaða uppgjöri Seltjarnarnesbæjar er staðan eftir fyrri helming ársins erfið, en rekstur bæjarins sýnir tap upp á 411 m.kr. Þar vega mest áhrif mikillar verðbólgu á tímabilinu en fjármagnsgjöld nema 242,5 m.kr. eða tæplega 60% af tapi tímabilsins. Þar að auki nemur breyting lífeyrisskuldbindingar á tímabilinu rúmlega 171 m.kr. þannig að mestan hluta tapsins má rekja til liða sem Seltjarnarnesbær hefur litla stjórn á. Einnig lita miklar framkvæmdir og vinna við viðhald á skóla- og íþróttahúsnæði bæjarins rekstrarniðurstöðu tímabilsins en töluvert af þeim framkvæmdum má rekja til aðgerða til að bæta öryggi og aðstöðu fyrir skólabörn og iðkendur íþrótta á Nesinu.

Ljóst er að staðan mun áfram verða þung á seinni hluta árs. Verðbólga ársins er komin í 5,6% en gert var ráð fyrir 4,1% verðbólgu í áætlunum fyrír árið 2026. Enn fremur gefur framlagning fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar ekki tilefni til bjartsýni, en þar eru að finna aðgerðir sem eru til þess fallnar að ýta enn frekar undir verðbólgu á komandi mánuðum, sem mun koma illa við flest sveitarfélög landsins sem og landsmenn. Einnig eru kjarasamningar í uppnámi og ef farið verður í miklar launahækkanir umfram það sem nú er samið, mun það hafa mikil áhrif á þróun lífeyrisskuldbindingar til hins verra hjá Seltjarnarnesbæ en rekstur bæjarins er mjög viðkvæmur fyrir breytingum á henni.

Þrátt fyrir að rekja megi hluta taprekstur bæjarins til þátta sem erfitt er að eiga við eða hafa stjórn á, tökum við meirihlutinn þessari niðurstöðu alvarlega og við munum grípa til aðgerða til að takast á við þessa erfiðu stöðu.

Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri

Bókun minnihluta Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra

Vegna 6 mánaða uppgjörs Seltjarnarnesbæjar 2026

Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra lýsa yfir þungum áhyggjum af 6 mánaða uppgjöri Seltjarnarnesbæjar 2026. Uppgjörið sýnir alvarlega og versnandi fjárhagsstöðu sem kallar á tafarlaus og markviss viðbrögð.

Þar má helst nefna

Viðvarandi tap á rekstri: A-hluti er með 521 milljóna króna tap eftir aðeins sex mánuði og samstæðan (A+B) með 411 milljóna króna tap. Tapið á hálfu ári er þegar orðið meira en tap samstæðunnar fyrir allt árið 2025. Frávik frá fjárhagsáætlun er um 400 m.kr. til hins verra.
Neikvætt veltufé frá rekstri: Veltufé frá rekstri A-hluta er neikvætt um 78 m.kr., samanborið við jákvætt veltufé upp á 89 m.kr. árið 2025. Þetta er alvarleg vísbending um getu sveitarfélagsins til að standa við skuldbindingar sínar.
Veik lausafjárstaða: Veltufjárhlutfall A-hluta er um 0,80 og A+B um 0,64, sem þýðir að skammtímaeignir standa ekki undir skammtímaskuldum.
Aukin skuldsetning og rýrnun eigin fjár: Skuldir samstæðunnar hafa aukist um 880 m.kr. á sex mánuðum (í 9,5 milljarða króna). Eigið fé A-hluta rýrnar um 521 m.kr. á sama tíma (úr 1.577 m.kr. í 1.056 m.kr.).
Þessi staða kemur því miður ekki á óvart, við höfum varað við þessari þróun síðustu ár og fjölluðum um alvarlega stöðu í kosningabaráttu vorsins, þó verður að segjast að staðan er enn verri en við gerðum ráð fyrir.

Það að fjárhagsstaðan sé orðin svona slæm eftir fyrstu sex mánuði ársins, án sýnilegra viðbragða meirihlutans, verður að teljast á ábyrgð bæjarstjóra sem hefði átt að hringja viðvörunarbjöllum og upplýsa bæjarstjórn um stöðuna.

Vakin er athygli á að samkvæmt 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er óheimilt að víkja frá samþykktri fjárhagsáætlun án samþykktra viðauka í bæjarstjórn. Þegar frávik upp á hundruð milljóna króna blasa við er óviðunandi að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr.

Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra kalla eftir því að farið verði strax í endurskoðun á fjárhagsáætlun, rekstri málaflokka og áætluðum fjárfestingum.

Við lýsum okkur tilbúin til að starfa af heilindum með meirihlutanum við að snúa þessari alvarlegu stöðu við. Áherslur okkar verða hins vegar skýrar: Við munum standa vörð um grunnþjónustu við börn og ungmenni og aðra viðkvæma hópa í öllum þeim aðgerðum sem ráðist verður í.

Við getum ekki breytt því sem komið er, en við berum ábyrgð á því hvernig brugðist verður við.

Kristinn Ólafsson og Sigurþóra Bergsdóttir

Til máls tóku: ÞS, KÓ, SB og MB

2. Fundargerð 348. fundar skólanefndar

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 8 liðum, samhljóða.

Til máls tóku: DSO, SB, ÞS, KÓ og MB

3. Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: ÞS, KÓ og SB

4. Fundargerð 47. fundar heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: ÞS og MB

Tillögur og erindi:

Tillaga: Bæjarstjóra barst beiðni frá lögreglu um að koma fyrir dróna á Seltjarnarnesi. Búið er að tryggja alla þætti er varða persónuvernd. Óskað er eftir kynningu á hvernig fyrirkomulag varðandi slíka dróna er og hvar hann yrði staðsettur. Bæjarstjóra falið að vinna málið nánar með lögreglu og koma með tillögur að staðsetningu á næsta bæjarstjórnarfundi.

Tillagan er samþykkt samhljóða.

 

Til máls tóku: ÞS, KÓ, SB og MB

 

Fundi slitið kl.: 17:57

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?