1033. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 23. september 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 5.
Fundinn sátu:
Magnús Benediktsson (MB), Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir (DSO), Björn Jóhannesson (BJ), Agnes Sólbjört Helgadóttir (ASH), Sigurþóra Bergsdóttir (SB), Auður Halla Rögnvaldsdóttir (AHR) og Skafti Harðarson (SH).
Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
1. Fundargerð 197. fundar bæjarráðs
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 6 liðum, samhljóða.
Til máls tóku: DSO og SB
2. Fundargerð 179. fundar í veitustjórn Seltjarnarnesbæjar
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: BJ
3. Fundargerð 440. fundar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: MB
4. Fundargerð 632. fundar stjórnar SSH.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku: AHR og DSO
Bókun Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra:
Í bréfi Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem lagt er fram á fundinum, er sveitarfélögum bent á mikilvægi ungmennaráða og að sveitarstjórnir setji nánari reglur um hlutverk og val í þau, sbr. 11. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.
Það liggur ekki skýrt fyrir hvaða reglur gilda um skipan, hlutverk og starfshætti ungmennaráðsins á Seltjarnarnesi. Í íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsustefnu Seltjarnarnesbæjar stendur að ungmennaráð skuli starfrækt svo ungmenni eigi kost á að hafa áhrif á umhverfi sitt, meðal annars með þátttöku í starfi nefnda bæjarins. Í forvarna- og lýðheilsustefnu bæjarins frá 2024 er einnig sérstaklega kveðið á um að tryggja skuli sæti fulltrúa nemenda í framhaldsskóla í ungmennaráði.
Í ljósi þessa er mikilvægt að skýra hlutverk og umboð ungmennaráðs og skoða hvernig tryggja megi því meiri aðkomu að þeim vettvangi þar sem ákvarðanir um málefni ungs fólks eru teknar.
Lagt er til að málefni ungmennaráðs verði vísað til skólanefndar til skoðunar, þar sem farið verði yfir skipan, hlutverk og fyrirkomulag ráðsins, gildandi reglur og mögulega þörf á endurskoðun þeirra.
Auður Halla Rögnvaldsdóttir og Sigurþóra Bergsdóttir
5. Fundargerð aðalfundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku: MB og SH
6. Fundargerð 93. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók:
7. Fundargerð 94. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók:
8. Fundargerð 95. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók:
9. Fundargerð 96. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók:
10. Fundargerð 148. fundar svæðisskipulagsnefndar.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: MB
11. Fundargerð 56. fundar eigendafundar Strætó bs.
Fundargerðin lögð fram.
12. Fundargerð 426. fundar stjórnar Strætó bs.
Fundargerðin lögð fram.
13. Fundargerð 56. fundar eigendafundar Sorpu bs.
Fundargerðin lögð fram.
14. Fundargerð 531. fundar stjórnar Sorpu bs.
Fundargerðin lögð fram.
15. Fundargerð 532. fundar stjórnar Sorpu bs.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: BJ
16. Fundargerð 282. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: MB
Tillögur og erindi:
a) Tillaga um að halda aukafund bæjarstjórnar 7. október 2026 lögð fram
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
b) Bréf til bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar frá VR og Starfsgreinasambandi Íslands lögð fram.
Í bréfi VR er meðal annars spurt hvort sveitarfélögin ætli að standa við gefin loforð til að liðka fyrir kjarasamningum, ma. með því að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf og með öðrum aðgerðum til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila?
Í bréfi Starfsgreinasambandsins er farið fram á að sveitarfélögin taki þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika, með markmiði um að ná niður verðbólgu og vöxtum og skapa þannig skilyrði fyrir því að kjarasamningar haldi. Er þess m.a. farið á leit að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga
Sameiginleg bókum bæjarstjórnar Seltjarnarness:
Bæjarstjórn Seltjarnarnes tekur undir mikilvægi þjóðarsáttar um verðstöðugleika og telur mikilvægt að sveitarfélög leggi sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi.
Við undirbúning fjárhagsáætlunar verður lögð áhersla á hóflegar gjaldskrárhækkanir og verður þar m.a. horft til 2,5% hækkunar sem viðmiðs fyrir gjaldskrár sem snúa að barnafjölskyldum, með fyrirvara um að kjarasamningar haldi og að ríki og önnur sveitarfélög taki þátt.
Með þessu viljum við leggja hönd á plóg til að draga úr verðbólguþrýstingi. Við fögnum þeim áskorunum sem fram hafa komið um að allir aðilar samfélagsins leggi sitt af mörkum í þessum efnum og viljum hvetja ríkið og önnur sveitarfélög eindregið til að bregðast við með sama hætti.
Til máls tók: SB
Önnur mál
SB minnti á sameiginlegt verkefni meðal barna og unglinga sem hún nefndi undir fundargerð 632. fundar SSH; Heillaspor og hvatti til áframhaldandi þátttöku í því.
Fundi slitið kl.: 17:34