Fara í efni

Bæjarstjórn

1034. fundur 07. október 2026 kl. 17:00 - 18:34 fundarsal bæjarstjórnar að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

1034. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 7. október 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 5.

Fundinn sátu:

Magnús Benediktsson (MB), Elísabet Einarsdóttir (EE), Björn Jóhannesson (BJ), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Auður Halla Rögnvaldsdóttir (AHR), Kristinn Ólafsson (KÓ) og Skafti Harðarson (SH). 

Fundargerð ritaði: Ari Eyberg.

Áður en gengið var til dagskrár lagði forseti bæjarstjórnar fram tillögu um breytingu á auglýstri dagskrá fundarins, sem var í tíu liðum.

Tillagan fól í sér að fundargerð 284. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins yrði bætt við dagskrá sem 10. dagskrárlið og að liðurinn „Tillögur og erindi“ yrði 11. dagskrárliður.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

1. Kosning í fastanefndir samkvæmt 56. gr. samþykktar um stjórn Seltjarnarnesbæjar

Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu um að fresta afgreiðslu dagskrárliðarins til næsta bæjarstjórnarfundar, þann 14. október 2026.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

2. Fundargerð 198. fundar bæjarráðs

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 5 liðum, samhljóða.

Bókun meirihluta við 1.–4. tölulið fundargerðar 198. fundar bæjarráðs:

Fulltrúar meirihlutans vísa til þeirra tillagna sem formaður bæjarráðs lagði fram á 198. fundi bæjarráðs og varða annars vegar úttekt á rekstri og mögulegum hagræðingartækifærum hjá Bókasafni Seltjarnarness, Sundlaug Seltjarnarness og félagsmiðstöðinni Selinu og hins vegar annan áfanga aðhaldsaðgerða í innri rekstri sveitarfélagsins.

Tillögurnar eru hluti af heildstæðri og áfangaskiptri endurskoðun á rekstri og stjórnsýslu Seltjarnarnesbæjar sem nú stendur yfir samhliða gerð fjárhagsáætlunar. Fyrsti áfangi þeirrar vinnu fól meðal annars í sér umfangsmiklar breytingar á nefnda- og ráðakerfi bæjarins. Markmið þeirra breytinga er að einfalda stjórnsýslu, fækka fundum, draga úr álagi á starfsfólk og þeirri yfirvinnu sem fundahald og eftirfylgni hefur í för með sér, auk þess að bæta nýtingu tíma, mannauðs og fjármuna sveitarfélagsins.

Tillögurnar sem nú eru til umfjöllunar marka næsta áfanga þessarar vinnu og beinast bæði að innri rekstri sveitarfélagsins og því að rýna hvort rekstur og opnunartímar einstakra stofnana séu í eðlilegu samræmi við nýtingu, kostnað og umfang sveitarfélagsins.

Við þá rýni hefur verið lögð áhersla á að bera Seltjarnarnes fyrst og fremst saman við sveitarfélög sem eru sambærileg að íbúafjölda. Að mati meirihlutans gefur slíkur samanburður raunhæfari mynd af rekstrarumhverfi sveitarfélags en samanburður við stærstu sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins, sem búa við allt aðra stærðarhagkvæmni og umfang rekstrar.

Fyrirliggjandi samanburður sýnir að opnunartímar stofnana Seltjarnarnesbæjar eru heilt yfir rýmri en hjá mörgum sveitarfélögum af sambærilegri stærð og að þjónustustig er að því leyti hærra. Fulltrúar meirihlutans leggja þó áherslu á að samanburður við önnur sveitarfélög sé ekki niðurstaða í sjálfu sér. Við mat á breytingum þarf einnig að horfa til raunverulegrar aðsóknar og nýtingar, kostnaðar, þarfa íbúa og faglegs mats stjórnenda viðkomandi stofnana.

Varðandi Bókasafn Seltjarnarness og Sundlaug Seltjarnarness verður vinnu við rýni á rekstri, opnunartímum og mögulegum hagræðingartækifærum haldið áfram í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar. Markmiðið er að kanna hvort unnt sé að ná fram hagkvæmari rekstri og betri nýtingu fjármuna án þess að ganga lengra í breytingum á þjónustu en gögn og raunveruleg nýting gefa tilefni til.

Varðandi félagsmiðstöðina Selið var óskað eftir sérstakri úttekt á vaktaskipulagi, opnunartíma, aðsókn og rekstri. Við þá vinnu kom í ljós að opnunartími hafði þegar verið styttur og starfsemin aðlöguð. Fulltrúar meirihlutans telja því ekki tilefni til frekari breytinga á opnunartíma Selsins að svo stöddu.

Sú niðurstaða endurspeglar þá nálgun sem lögð er til grundvallar þessari vinnu. Markmiðið er ekki að ráðast í fyrirfram ákveðnar skerðingar heldur að rýna gögn, nýtingu og rekstur og grípa til aðgerða þar sem þær eru málefnalegar og rekstrarlega réttlætanlegar.

Fjórða tillagan, annar áfangi aðhaldsaðgerða, snýr að frekara aðhaldi í innri rekstri sveitarfélagsins. Þar samþykkti bæjarráð meðal annars tímabundið ráðningar- og yfirvinnubann. Áður en til nýráðninga kemur verði leitað leiða með innri tilfærslum, endurskipulagningu verkefna og auknu samstarfi innan og milli deilda og stofnana. Jafnframt er gert ráð fyrir undanþágum þegar nauðsynlegt er til að standa vörð um lögbundna grunnþjónustu og öryggi íbúa.

Samhliða þessu samþykkti bæjarráð að lækka greiðslur til bæjarfulltrúa og breyta greiðslufyrirkomulagi þannig að greitt verði eftir raunverulegri mætingu á bæjarstjórnarfundi, með það að markmiði að breytingarnar skili að lágmarki 16% hagræðingu. Fulltrúar meirihlutans telja eðlilegt að kjörnir fulltrúar horfi einnig til eigin kostnaðar og taki sjálfir þátt í þeim aðhaldsaðgerðum sem nú er ráðist í.

Rekstrarstaða Seltjarnarnesbæjar er þung og kallar á markviss viðbrögð. Langvarandi verðbólga, hátt vaxtastig, aukinn fjármagnskostnaður og verulegar hækkanir á launa- og öðrum rekstrarkostnaði hafa gert rekstrarumhverfið erfiðara. Fulltrúar meirihlutans leggja jafnframt áherslu á að ekki sé hægt að skýra stöðu sveitarfélagsins með ytri aðstæðum einum og sér. Það er á ábyrgð bæjarstjórnar að horfa gagnrýnið á eigin rekstur, forgangsröðun og nýtingu fjármuna og bregðast við þar sem tækifæri eru til umbóta og hagræðingar.

Framangreindar tillögur eru því ekki stakar eða ótengdar aðhaldsaðgerðir heldur hluti af heildstæðri og áframhaldandi vinnu við að einfalda stjórnsýslu, bæta nýtingu mannauðs og fjármuna, styrkja rekstrargrundvöll Seltjarnarnesbæjar og standa um leið vörð um mikilvæga grunnþjónustu við bæjarbúa.

Næsti áfangi aðgerða verður lagður fram í bæjarráði 12. október og verður vinnunni áfram haldið samhliða gerð fjárhagsáætlunar.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks.

Bókun Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra:

Fulltrúar Samfylkingar, viðreisnar og óháðra gera alvarlega athugasemd við gögnin sem eru “tillögu um úttekt á vaktaskipulagi og rekstri félagsmiðstöðvarinnar Selsins” til grundvallar. Við köllum eftir því að leiðréttar verði upplýsingar um opnunartíma Selsins, sem stendur í tillögunni að sé 25 klst á viku, en er í raun mun styttri.

Einnig bendum við á að þó það geti verið freistandi fyrir bæjaryfirvöld, þegar litið er til hagræðingar, að skerða þjónustu sem ekki er lögbundin, þá er mikilvægt að standa vörð um forvarnarstarf; Starf sem tekur utan um börnin okkar og gefur þeim öruggt skjól.

Bent er á að ekki er gert ráð fyrir neinni aðkomu ungmenna, einu neytendur þjónustunnar sem Selið veitir, í vinnslu tillögunnar og köllum eftir að samráð við ungmennaráð Seltjarnarnes verði hluti af samráðsferli hennar.

Bæjarfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra.

Til máls tóku: EE, AHR, ÞS, SH og MB.

3. Fundargerð 180. fundar Skipulags- og umferðarnefndar

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Eftirfarandi liðir í fundargerðinni eru lagðir fram til samþykktar:

1. 2026090241 – Fornaströnd 7, óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna glerskála

Sótt er um að breyta deiliskipulagi svo unnt verði að byggja glerskála á lóðinni Fornaströnd 7. Byggingarreitur er stækkaður til suðurs og nýtingarhlutfall aukið úr 0,3 í 0,36. Við þessa aukningu á nýtingarhlutfalli rúmast nýr glerskáli og allt núverandi hús ásamt B-rýmum þess innan heimildarinnar sem hækkað nýtingarhlutfall gerir mögulegt að byggja á lóðinni.

Afgreiðsla: Samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna breytingu á deiliskipulaginu, í samræmi við 2. málsgrein 43. og 44. greinar skipulagslaga. nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirfarandi lóða: Fornaströnd 5, 8, 9 og 10 og jafnframt Víkurströnd 6, 8 og 10. Skipulagsfulltrúa falið að kynna málið sérstaklega fyrir réttarhöfum lóðanna Víkurstrandar 6 og 8 og Fornustrandar 5.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 1. lið fundargerðarinnar, samhljóða.

3. 2026050127 – Bollagarðar 107, óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna glerskála

Breytingu á deiliskipulagi Bollagarða og Hofgarða var nýlega grenndarkynnt. Athugasemd barst frá nágranna sem telur meðal annars að tillagan skerði útsýni sitt. Málinu var frestað á síðasta fundi en þá bókaði nefndin eftirfarandi: Frestað. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kynna andmælin fyrir húseigendum og ráðgjafa þeirra og óska eftir viðbrögðum þeirra.

Sjónarmið húseiganda liggja nú fyrir en þeir eru ekki sammála mótmælunum og benda á að viðkomandi hafi nú þegar afar takmarkað útsýni til sjávar.

Afgreiðsla: Nefndin telur rétt að taka tillit til mótmælanna beinir því til bæjarstjórnar að breytingin sem var grenndarkynnt verði ekki samþykkt.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 3. lið fundargerðarinnar, samhljóða utan eins bæjarfulltrúa (SH) sem situr hjá.

4. 2026090284 – Austurströnd 2-14. Möguleg breyting á atvinnuhúsnæði á 1. og 2. hæð í íbúðarhúsnæði

Vaknað hefur spurning hvort mögulegt verði í framtíðinni að breyta atvinnuhúsnæði á 1. og mögulega 2. hæð við Austurströnd 2-14 í íbúðarhúsnæði. Þessi hús eru á svokölluðu miðsvæði í aðalskipulagi Seltjarnarness, nánar tiltekið á svæði M2. Um það stendur: „Byggingar mega vera 2-4 hæðir og þá hæstar við Suðurströnd skv. nánari útfærslu í deiliskipulagi. Reitur á horni Norðurstrandar og Suðurstrandar sem er um 0,4 ha telst þróunarreitur þar sem ekki má útiloka möguleika á endastöð Borgarlínu. Nýtingarhlutfall á hornreitnum er allt að 0,6.“

Ekkert í aðalskipulagi gerir kröfu um að það sé atvinnustarfsemi á neðri hæðum við Austurströnd. Svæðið hefur ekki verið deiliskipulagt. Því er hægt heimila breytta notkun á húsnæði á 1. og 2. hæð við Austurströnd 2-14. Gæta þarf að því að nýjar íbúðir uppfylli byggingarreglugerð, með tilliti til flóttaleiða og fleiri atriða. Afgreiðsla: Málið rætt. Nefndin er jákvæð gangvart þeim að möguleiki verði að breyta atvinnuhúsnæði á 1. og 2. hæð við Austurströnd í íbúðarhúsnæði að vandlega athuguðu máli.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar á 4. lið fundargerðarinnar, samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 8 liðum, samhljóða.

Til máls tóku: ÞS, KÓ, BJ og MB.

4. Fundargerð 168. fundar menningarnefndar

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: EE, KÓ og ÞS

5. Fundargerð 633. fundar stjórnar SSH.

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: ÞS, SH, MB, EE og KÓ.

6. Fundargerð 1.002 fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga

Fundargerðin lögð fram.

7. Fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tók: SH.

8. Fundargerð 48. fundar heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: EE, ÞS og MB.

9. Fundargerð 283. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins

Fundargerðin lögð fram.

10. Fundargerð 284. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins

Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: ÞS, MB og KÓ.

Eftirfarandi liðir í fundargerðinni eru lagðir fram til samþykktar.

2. Gjaldskrá 2027 - 2609007

Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. hefur fyrir sitt leyti á stjórnarfundi 2. október sl. samþykkt meðfylgjandi gjaldskrá fyrir slökkviliðið.

Megintilgangur gjaldskrárinnar er að gera slökkviliðsstjóra mögulegt að taka gjald samkvæmt heimild í 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum þegar þarf að beita þvingunarúrræðum og/eða viðurlögum.

Gjaldskráin hækkar í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands eða um 2,5% milli ára.

Um tvenns konar taxta er að ræða. Annars vegar vegna gjaldtöku fyrir lögbundin verkefni, þar sem heimild til gjaldtöku liggur fyrir í lögum. Grunneining vegna slíkrar gjaldtöku er 23.900 kr./klst.

Hins vegar er sérstakur taxti vegna gjaldtöku fyrir önnur verkefni og þjónustu sem slökkviliðið sinnir ef óskað er eftir því. Þetta eru verkefni sem eru ekki lögbundin, en falla þó að tilgangi liðsins skv. stofnsamningi, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Grunneining vegna slíkrar gjaldtöku er 32.300 kr./klst. Mikilvægt þykir að gjaldtakan sé þess eðlis að hún hvetji heldur til þess að leitað sé til aðila á hinum almenna markaði eftir þessari þjónustu, sé þess kostur, þar sem slökkviliðið eigi aldrei að vera eftirsóknarverður valkostur til að sinna ólögbundnum verkefnum sem aðrir geti hugsanlega sinnt. Því er einingaverð vegna gjaldtöku fyrir verkefni sem ekki teljast lögbundin verkefni slökkviliðsins 35% hærra en einingaverð fyrir lögbundin verkefni.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2027, samhljóða.

1. Fjárhagsáætlun SHS 2027 – 2031 - 2607013

Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun SHS 2027 – 2031 samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina, sem er í 3 liðum, samhljóða.

11. Tillögur og erindi:

a) Bréf EFS til bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar

Bókun Sjálfstæðisflokksins:

Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðimanna taka erindi Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga af fullri alvöru. Ekki hvað síst í núverandi árferði sem er sveitarfélögum alls ekki hagfellt.

Há verðbólga, áhrif kjarasamninga auk lífeyrisskuldbindinga eru okkar sveitarfélagi sérstaklega íþyngjandi.

Nú þegar hefur verið gripið til aðgerða til hagræðingar hjá sveitarfélaginu og vonumst við til að sjá árangur af þeim fyrir lok árs. Meðal þess sem gert hefur verið, er að setja á ráðningar- og yfirvinnubann eftir því sem við verður komið, auk þess að hægja á og draga úr aðkeyptri þjónustu þar sem því er viðkomið. Gert er ráð fyrir enn frekari aðgerðum við gerð áætlunar fyrir komandi ár en verið er að móta þær þessa dagana og verða þær kynntar síðar.

Bréfritarar hjá nefndinni bjóða samráð og aðstoð og munum við þiggja fund til nefndarinnar á komandi vikum. Það gerði fyrrverandi meirihluti og gafst einkar vel.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.

Bókun Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra:

Vegna bréfs Eftirlitsnefndar sveitarfélaga.

Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra vísa til bréfs Eftirlitsnefndar sveitarfélaga frá 24.

september 2026 vegna yfirferðar á ársreikningi Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2025.

Í bréfinu kemur fram að Seltjarnarnesbær uppfylli skuldaviðmið en ekki jafnvægisreglu

sveitarstjórnarlaga og sé því brotlegt við 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. laganna. EFS bendir jafnframt

á að þriggja ára rekstrarjöfnuður A-hluta sé neikvæður um 1.057,9 milljónir króna.

Þetta kemur í kjölfar þess að rekstrarniðurstaða A-hluta fyrstu sex mánaða ársins 2026 er

neikvæð um 521,2 milljónir króna, en tap samstæðu A- og B-hluta nemur 411,0 milljónum króna.

Við höfum áður lýst yfir áhyggjum af þróun rekstrar og fjárhagsstöðu bæjarins. Bréf EFS

undirstrikar hins vegar að nú þarf að horfa til þessara mála með enn skýrari hætti. EFS leggur

áherslu á að sveitarstjórn móti skýra áætlun um aðgerðir til að tryggja að jafnvægisreglan verði

uppfyllt á ný.

Bæjarfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra

Til máls tóku: ÞS, KÓ, SH, EE, AHR og MB.

Önnur mál

Til máls tóku: ÞS, SH, BJ og MB.

 

Fundi slitið kl: 18:34

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?