1035. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 14. október 2026, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 5.
Fundinn sátu:
Magnús Benediktsson (MB), Elísabet Einarsdóttir (EE), Björn Jóhannesson (BJ), Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir (SDO), Helgi Steinar Helgason (SHS), Kristinn Ólafsson (KÓ) og Skafti Harðarson (SH).
Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
1. Kosning í fastanefndir samkvæmt 56. gr. samþykktar um stjórn Seltjarnarnesbæjar
Eftirtaldir fulltrúar eru tilnefndir af D-lista, S-lista og M-lista.
Skipulags- og umhverfisnefnd
Aðalmenn:
D - Björn Jóhannesson, formaður
D - Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, varaformaður
D - Grétar Dór Sigurðsson
S - Helgi Steinar Helgason
M Þóra Sif Friðriksdóttir
Varamenn:
D - Magnús Benediktsson
D - Örn Viðar Skúlason
D - Anna Björg Erlingsdóttir
S – María Stefánsdóttir
M – Hákon R. Jónsson
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Aðalmenn:
D - Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, formaður
D - Elísabet Ingunn Einarsdóttir, varaformaður
D - Pétur Már Harðarson
S - Áslaug Eva Björnsdóttir
M - Hannes Tryggvi Hafstein
Varamenn:
D - Thelma Wilson
D - Magnús Benediktsson
D - Björn Jóhannesson
S - Halla Helgadóttir
M - Jóhanna Sveinsdóttir
Velferðarnefnd
Aðalmenn:
D -Magnús Benediktsson, formaður
D - Elísabet Ingunn Einarsdóttir, varaformaður
D - Anna Björg Erlingsdóttir
S - Auður Halla Rögnvaldsdóttir
S - Egill Helgason
M - Ástríður S. Jónsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Varamenn:
D - Anna María Gísladóttir
D - Lilja Pálsdóttir
D - Ásgeir Bjarnason
S - Sigurþóra Bergsdóttir
S - Kristín Edda Óskarsdóttir
M - Guðrún Jónsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þjónustu- og menningarnefnd
Aðalmenn:
D - Elísabet Ingunn Einarsdóttir, formaður
D - Björn Jóhannesson, varaformaður
S - Sigurþóra Bergsdóttir
M - Tómas Nielsen, áheyrnarfulltrúi
Varamenn:
D - Magnús Benediktsson
D - Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir
S - Helgi Steinar Helgason
M - Ágústa Sif Víðisdóttir, áheyrnarfulltrúi.
Tilnefningarnar voru samþykktar samhljóða.
Til máls tók: EE
Bókun meirihluta bæjarstjórnar:
Meirihluti bæjarstjórnar fagnar því að breytingar á bæjarmálasamþykkt og nefndakerfi Seltjarnarnesbæjar hafi nú hlotið staðfestingu Innviðaráðuneytisins.
Um er að ræða umfangsmiklar breytingar sem miða að því að efla stjórnsýslu sveitarfélagsins, einfalda nefndakerfið, sameina tengda málaflokka og skýra ábyrgð og verkaskiptingu. Með færri og öflugri nefndum er stefnt að skilvirkari ákvarðanatöku, minni stjórnsýslubyrði og betri nýtingu tíma og fjármuna.
Áætlað er að nefndarfundum geti fækkað um allt að 25% á ári, sem skapar tækifæri til að draga úr álagi á stjórnsýsluna og auka svigrúm starfsfólks til að sinna öðrum mikilvægum verkefnum.
Breytingarnar marka mikilvægt skref í þeirri heildarendurskoðun á stjórnsýslu og rekstri bæjarins sem meirihlutinn hefur lagt áherslu á frá upphafi kjörtímabilsins. Markmiðið er að byggja upp skilvirka og öfluga stjórnsýslu sem styður við ábyrga nýtingu fjármuna, vandaða ákvarðanatöku og góða þjónustu við íbúa Seltjarnarness.
2. Fundargerð 455. fundar Íþrótta- og tómstundanefndar
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: DSO
3. Fundargerð 1.003 fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.
4. Tillögur og erindi:
a) Tillaga um úrsögn Seltjarnarnesbæjar úr Samtökum orkusveitarfélaga
Tillögunni er frestað til næsta bæjarstjórnarfundar.
Önnur mál
Fundi slitið kl: 17:17