Fara í efni

Bæjarstjórn

11. febrúar 2009

Miðvikudaginn 11. febrúar 2009 kom bæjarstjórn Seltjarnarness saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi kl. 17:00.

Mættir voru: Jónmundur Guðmarsson (JG), Ásgerður Halldórsdóttir (ÁH), Sigrún Edda Jónsdóttir (SEJ),  Lárus B. Lárusson (LBL), Þór Sigurgeirsson (ÞS), Guðrún Helga Brynleifsdóttir (GHB) og Árni Einarsson (ÁE).

Forseti bæjarstjórnar, Ásgerður Halldórsdóttir, setti fund og stjórnaði.

Ritari bæjarstjórnar Stefán Bjarnason ritaði fundargerð.

Fyrir var tekin fundargerð síðasta fundar, samþykkt samhljóða og undirrituð.

Lögð var fram fundargerð 406. fundar  Fjárhags- og launanefndar Seltjarnarness, dagsett 10. febrúar 2009, og var hún í 11 liðum.
Til máls tóku: ÁE, ÞS, JG og SEJ.

Fundargerðin var samþykkt samhljóða.

  1. Lögð var fram fundargerð 406. fundar  Fjárhags- og launanefndar Seltjarnarness, dagsett 10. febrúar 2009, og var hún í 11 liðum.
    Til máls tóku: ÁE, ÞS, JG og SEJ.
    Fundargerðin var samþykkt samhljóða.
  2. Lögð var fram fundargerð  350. fundar  Félagsmálaráðs Seltjarnarness, dagsett 22. janúar 2009, og var hún í 7 liðum. Einnig lagðar fram skýrslur dagsettar í desember 2008,  ráðgjafi Aðgengi ehf,   um aðgengi í Sundlaug Seltjarnarness, Íþróttahúsi Seltjarnarness og Félagsheimili Seltjarnarness.
    Til máls tóku: JG, ÁE og LBL.
    Í Félagsmálaráð Seltjarnarnes var kjörinn nýr formaður og aðalmaður, Ragnar Jónsson, Nesbala 62, í stað Berglindar Magnúsdóttur sem óskað hefur eftir að hætta í félagsmálaráði, vegna nýrra starfa.
    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.
  3. Lögð var fram fundargerð 339. fundar  Íþrótta- og tómstundaráðs Seltjarnarness, dagsett 27. janúar 2009, og var hún í 14 liðum.
    Til máls tóku: LBL, ÞS, GHB.
    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.
  4. Lögð var fram fundargerð 81. fundar  stjórnar Veitustofnana á Seltjarnarnesi, dagsett 3. febrúar 2009, og var hún í 3 liðum.
    Til máls tók: JG.
    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.
  5. Lögð var fram fundargerð 11. fundar stjórnar Lækningaminjasafns Íslands, dagsett 30. janúar 2009, og var hún í 5 liðum.
    Til máls tóku: JG, GHB og ÁE.
    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.
  6. Lögð var fram fundargerð 291. fundar stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, dagsett 18. desember 2008, og var hún í 6 liðum.
    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.
  7. Lögð var fram fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs, dagsett 18. desember 2008, og var hún í 4 liðum.
    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.
  8. Lögð var fram fundargerð 1. fundar  ársins 2009 hjá Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis, dagsett 20. janúar 2009, og var hún í 7 liðum.
    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.
  9. Lögð var fram fundargerð 760. fundar  stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett 23. janúar 2009, og var hún í 35 liðum.
    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykkar.
  10. Lögð var fram fundargerð 114. fundar  stjórnar STRÆTÓ bs., dagsett 16. janúar 2009, og var hún í 5 liðum.
    Til máls tóku: SEJ og LBL.
    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar. 
  11. Tillögur og erindi:
    a)     Lagt var fram fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.. 2009 sem fyrirhugaður er 13. mars 2009 á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu.
    Til máls tók: JG.

    b)    Lagt var fram fundarboð á 23. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fyrirhugað er 13. mars 2009 á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu.

    c)     Lagt var fram bréf frá Snorra Aðalsteinssyni f.h. Félagsmálaráðs Seltjarnarness, dagsett 4. febrúar 2009, varðandi úttekt Aðgengis ehf.. á aðgengi með tilliti til allra í Íþróttamiðstöð, Sundlaug og Félagsheimili Seltjarnarness.

    d)    Lagt var fram bréf frá Snorra Aðalsteinssyni framkvæmdastjóra félagsþjónustusviðs, dagsett 2. febrúar 2009, varðandi vinnumarkaðsúrræði Vinnumálastofnunar.
    Til máls tóku: JG og ÁE.
    Tekið er undir mikilvægi erindisins og bæjarstjóra falið að taka málið upp á fundi SSH.
    Bréfinu vísað til Félagsmálaráðs Seltjarnarness.

    e)     Lagt var fram bréf nokkurra einstaklinga á Seltjarnarnesi, dagsett 23. janúar 2009,  um að bæjarstjórn komi á framfæri við ríkisstjón Íslands áskorun bréfsins sem er í 3 liðum.

    f)      Tekin var fyrir umsagnarbeiðni frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu sem frestað var á síðasta fundi bæjarstjórnar í lið 15c og tekin til afgreiðslu framkomin tillaga.
    Til máls tóku: Allir bæjarfulltrúar.        
    Borin var undir atkvæði tillaga að umsögn frá síðasta fundi.   
    Samþykkir voru 2, JG og ÞS,  á móti voru 5,  ÁH, LBL, SEJ, GHB og ÁE.

    Guðrún Helga Brynleifsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu að umsögn vegna umsóknar rekstrarleyfis sbr. 4. mgr. 10. gr. laga nr 85/2007.

    „Bæjarstjórn hefur fengið til umsagnar umsókn Ljónsins ehf. Kt.. 411208-0870 um nýtt rekstrarleyfi á Eiðistorgi 15. Fram kemur í umsókn að umsækjandi hyggst reka þar skemmtistað sem til stendur að hafa opin til kl. 01:00 alla virka daga og til kl. 03:00 aðfaranótt laugardags, sunnudags eða almenns frídags.
    Samkvæmt lögum nr. 85/2007, 4.gr.. eru veitingastaðir flokkaðir í þrjá flokka. Umsækjandi sækir um rekstur á veitingastað samkvæmt III. flokki en slíkur veitingastaður er skilgreindur sem „umfangsmiklir áfengisveitingastaðir, svo sem þar sem leikin er hávær tónlist og/eða afgreiðslutími er lengri en til kl. 23 og kalla á meira eftirlit og/eða löggæslu“.
    Í húsnæði því sem hér um ræðir, er bæði verslunar- og íbúðarhúsnæði. Aðgengi að staðnum er í gegnum Eiðistorgið, sem er stórt svæði.
    Það er mat bæjarstjórnar að svo umfangsmikill áfengisveitingastaður í téðu húsnæði sé til þess fallinn að valda íbúum og nágrenninu ónæði. Af þeirri ástæðu getur bæjarstjórn ekki fyrir sitt leyti gefið umsókninni jákvæða umsögn“.

    Guðrún Helga Brynleifsdóttir
    (sign)

    Tillagan var borin undir atkvæði.
    Samþykkir voru 5, ÁH, SEJ, LBL, GHB og ÁE, á móti var 1, ÞS og 1, JG sat hjá.

 

Fundi var slitið kl.  17:55

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?