Fara í efni

Bæjarstjórn

28. september 2011

Miðvikudaginn 28. september 2011 kl. 17:00 kom bæjarstjórn Seltjarnarness saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.

Mættir voru: Ásgerður Halldórsdóttir (ÁH), Guðmundur Magnússon (GM), Sigrún Edda Jónsdóttir (SEJ), Lárus Brynjar Lárusson (LBL), Bjarni Torfi Álfþórsson (BTÁ), Margrét Lind Ólafsdóttir (MLÓ) og Árni Einarsson (ÁE).

Ritari bæjarstjórnar, Stefán Bjarnason, ritaði fundargerð í tölvu.

Forseti bæjarstjórnar, Sigrún Edda Jónsdóttir, setti fund og stjórnaði.

  1. Lögð var fram fundargerð 443. fundar Fjárhags- og launanefndar Seltjarnarness, dagsett 22. september 2011 og var hún í 16 liðum.

    Til máls tók: MLÓ.

    Fundargerðin var samþykkt samhljóða.

  2. Lögð var fram fundargerð 162. fundar Skipulags- og mannvirkjanefndar Seltjarnarness, dagsett 20. september 2011 og var hún í 7 liðum.

    Mál 2010120066 Deiliskipulagsbreyting Suðurströnd skóla/íþróttasvæði – Samþykkt samhljóða að vísa tillögunni aftur til Skipulags- og mannvirkjanefndar Seltjarnarness vegna nýrra upplýsinga sem komið hafa fram.

    Aðrir liðir fundargerðarinnar gáfu ekki tilefni til samþykktar.

  3. Lögð var fram fundargerð 369. fundar Félagsmálaráðs Seltjarnarness, dagsett 8. september 2011 og var hún í 5 liðum.

    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.

  4. Lögð var fram fundargerð 356. (6.) fundar Íþrótta- og tómstundaráðs Seltjarnarness, dagsett 13. september 2011 og var hún í 12 liðum.

    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.

  5. Lögð var fram fundargerð 233. fundar Umhverfisnefndar Seltjarnarness, dagsett 19. september 2011 og var hún í 8 liðum.

    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.

  6. Lögð var fram fundargerð 97. fundar Veitustofnana Seltjarnarness, dagsett 15. september 2011 og var hún í 8 liðum.

    Til máls tóku: MLÓ, ÁH og ÁE.

    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.

  7. Lögð var fram fundargerð 6. fundar ársins 2011 hjá Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis, dagsett 19. september 2011 og var hún í 6 liðum.

    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.

  8. Lögð var fram fundargerð 315. fundar stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, dagsett 1. september 2011 og var hún í 5 liðum.

    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.

  9. Lögð var fram fundargerð 789. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett 9. september 2011 og var hún í 34 liðum.

    Fundargerðin gaf ekki tilefni til samþykktar.

  10. Erindi og tillögur:

    1. Lagt var fram bréf frá Velferðarvaktinni, dagsett 1. september 2011, um hvatningu í upphafi skólaárs.

Fundi var slitið kl. 17:10

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?