Fara í efni

Bæjarstjórn

13. apríl 2016

Miðvikudaginn 13. apríl 2016 kl. 17:00 kom bæjarstjórn Seltjarnarness saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.

Mættir voru: Ásgerður Halldórsdóttir (ÁH), Bjarni Torfi Álfþórsson (BTÁ), Sigrún Edda Jónsdóttir (SEJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Magnús Dalberg (MD), Margrét Lind Ólafsdóttir (MLÓ) og Árni Einarsson (ÁE).

Ritari bæjarstjórnar Gunnar Lúðvíksson, ritaði fundargerð í tölvu.

Forseti bæjarstjórnar, Bjarni Torfi Álfþórsson setti fund og stjórnaði.

  1. Lagður var fram ársreikningur Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2015, fyrri umræða.

    Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2015.

    Auðunn Guðjónsson endurskoðandi KPMG gerði grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins, lykiltölum og endurskoðunarskýrslu.

    Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn og færði starfsmönnum bæjarins þakkir fyrir þeirra hlut í mun betri afkomu bæjarins en áætlanir gerðu ráð fyrir.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi Seltjarnarnesbæjar 2015 til annarrar og síðari umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar sem er 27. apríl 2016.

    Til máls tóku: ÁE

  2. Fundargerð 26. fundar Bæjarráðs.

    Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.

    Til máls tóku: ÁE

    Fundargerð 27. fundar Bæjarráðs.

    Fundargerðin sem er 1 tl. er samþykkt samhljóða.

    Fundargerð 28. fundar Bæjarráðs.

    Fundargerðin sem er 2 tl. er samþykkt samhljóða.
    Til máls tóku: MLÓ, ÁE

  3. Fundargerð 273. fundar Skólanefndar.

    Fundargerðin lögð fram.

    Til máls tóku: MLÓ, ÁH, SEJ

  4. Fundargerð 130. fundar Menningarnefndar.

    Fundargerðin lögð fram.

    Til máls tóku: MLÓ, ÁH

  5. Fundargerð 29. fundar Jafnréttisnefndar, ásamt Jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar.

    Fundargerðin og Jafnréttisáætlun lögð fram.

    Afgreiðsla um Jafnréttisáætlun frestað og vísað til bæjarráðs.

    Til máls tóku: ÁE, ÁH, SEJ,

  6. Fundargerð 119. fundar Veitustofnana.

    Fundargerðin lögð fram.

  7. Fundargerð 5. fundar nefndar um stefnumörkun í ferðaþjónustu á Seltjarnarnesi.

    Fundargerðin lögð fram.

  8. Fundargerð 351. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

    Fundargerðin lögð fram.

  9. Fundargerð í stjórn Reykjanesfólkvangs.

    Fundargerðin lögð fram.

  10. Fundargerð 837. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga.

    Fundargerðin lögð fram.

  11. Fundargerð 428. fundar stjórnar SSH.

    Fundargerðin lögð fram,.

  12. Fundargerð 241. fundar stjórnar Strætó bs.

    Fundargerðin lögð fram.

  13. Erindi og önnur mál.

    Bæjarstjóri lagði fram svör við bókun Guðmundar Ara Sigurjónssonar bæjarfulltrúa, á fundi skólanefndar nr. 273 16. mars s.l. lagt fram.

Fundi var slitið kl.: 17:53

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?