484. fundur Fjölskyldunefndar var haldinn þriðjudaginn 10. febrúar 2026, kl. 08:15 í fundarsal bæjarskrifstofa Seltjarnarnesbæjar.
Fundinn sátu: Hildigunnur Gunnarsdóttir (formaður), Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, Hákon Jónsson og Björg Þorsteinsdóttir.
Fundarritari: Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og starfsmaður nefndar.
Dagskrá:
1. 2026020030 - Samstarfssamningur um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.
Fjölskyldunefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðan samstarfssamning um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna. Nefndin vísar málinu til bæjarráðs og hvetur til þess að samningurinn verði samþykktur.
2. 2026020006 - Málaflokkur fatlaðs fólks - þróun umfangs og kostnaðar.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir þróun umfangs og kostnaðar við málaflokk fatlaðs fólks frá árinu 2018.
3. 2026020036 - Greiðsluviðmið fárhagsaðstoðar hjá Seltjarnarnesbæ árið 2026.
Fjölskyldunefnd samþykkti tillögu að greiðsluviðmiðum fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2026 með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
4. 2026020037 - Greiðslur til stuðningsfjölskyldna árið 2026.
Fjölskyldunefnd samþykkti tillögu að greiðslum til stuðningsfjölskyldna fyrir árið 2026 með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.
Fundi slitið kl. 09:20.