Fara í efni

Fjölskyldunefnd

485. fundur 21. apríl 2026 kl. 08:15 - 09:23 fundarherbergi að Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

485. fundur Fjölskyldunefndar var haldinn þriðjudaginn 21. apríl 2026, kl. 08:15 í fundarsal bæjarskrifstofa Seltjarnarnesbæjar.

Fundinn sátu: Hildigunnur Gunnarsdóttir (formaður), Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir og Björg Þorsteinsdóttir. 

Fundarritari: Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og starfsmaður nefndar.

Dagskrá:

1. 2026030342 - Sérstakur húsnæðisstuðningur, leiðbeiningar frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

Lagt fram. Fjölskyldunefnd felur sviðsstjóra að vinna og leggja fram uppfærðar reglur sveitarfélagsins um sérstakan húsnæðisstuðning til samræmis við leiðbeiningar ráðuneytisins fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings.

2. 2026040022 - Æfing dagsins - hreyfidagatal.

Lagt fram. Sviðsstjóra var falið að svara erindinu.

Dagskrárliður 4 var færður og tekinn fyrir á undan 3. dagskrárlið.

Þór Sigurgeirsson kom til fundar kl. 9:10.

3. 2026040194 - Seltjörn - dagdvöl.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.

Þór Sigurgeirsson vék af fundi kl. 9:20.

4. 2026040195 - Málaflokkar félagsþjónustu - staða mála.

Sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu málaflokka félagsþjónustu.

 

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.

Fundi slitið kl. 09:23.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?