486. fundur Fjölskyldunefndar var haldinn þriðjudaginn 18. ágúst 2026, kl. 08:15 í fundarsal bæjarskrifstofa Seltjarnarnesbæjar.
Fundinn sátu: Magnús Benediktsson (formaður), Lilja Pálsdóttir, Anna Björg Erlingsdóttir, Björg Þorsteinsdóttir og Ástríður S. Jónsdóttir.
Fundarritari: Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og starfsmaður nefndar.
Dagskrá:
1. 2026080066 - Starfsemi félagsþjónustusviðs, erindisbréf fjölskyldunefndar og starfshættir nefndarinnar.
Sviðsstjóri félagsþjónustusviðs kynnti starfsemi sviðsins. Farið var yfir hlutverk nefndarinnar skv. erindisbréfi og starfshætti hennar.
2. 2026030342 - Sérstakur húsnæðisstuðningur, tillögur að reglubreytingum.
Lagt fram. Fjölskyldunefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
3. 2026080065 - Nýir fundartímar fjölskyldunefndar haustið 2026.
Fjölskyldunefnd samþykkti eftirfarandi fundartíma fyrir haustið 2026: 19. október og 16. nóvember.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.
Fundi slitið kl. 09:25.