Fara í efni

Íþrótta- og tómstundanefnd

05. júní 2019

416.(7.) fundur Íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarness, haldinn miðvikudaginn 5. júní 2019 kl. 16:30 í vallarhúsi.

Mættir voru: Sigríður Sigmarsdóttir, Guðmundur Helgi Þorsteinsson, Lárus Gunnarsson, Helga Charlotte Reynisdóttir og Saga Ómarsdóttir.

Forföll boðaði Kristján Hilmir Baldursson.

Áhreyrnarfulltrúi ungmennaráðs mætti ekki.

Ritari fundar: Haukur Geirmundsson.

  1. Samstarfssamningur Seltjarnarnesbæjar og Íþróttafélagsins Gróttu. Mnr. 2019060088.

    Formaður, framkvæmdastjóri og íþróttastjóri mættu á fundinn og fóru yfir ýmis málefni í starfi félagsins og framtíðarsýn.

    Fulltrúarnir lögðu fram hugmyndir að breytingum á samningnum sem ÍTS vísar til bæjarráðs til afgreiðslu.

  2. Skýrsla Mennta- og menningarmálaráðuneytisins vegna meetoo umræðunnar. Mnr. 2019060089.

    Skýrslan kynnt og í máli fulltrúa Gróttu kom fram að félagið hefur brugðist við á ýmsan hátt vegna meetoo umræðunnar.

  3. Styrkbeiðni vegna æfinga- og keppnisferðar til Möltu. Mnr. 2019060090.

    Samþykkt að veita fimleikadeildinni kr. 140 þúsund vegna ferðarinnar.

    16 stúlkur 10-18 ára keppa í áhaldafimleikum í Malta Gym international.

  4. Styrkbeiðni vegna æfingaferðar til Danmerkur. Mnr.2019060100.

    Samþykkt að veita fimleikadeild kr. 140 þúsund vegna ferðarinnar.

    15 stúlkur úr meistarahópi hópfimleika halda til Ollerup í æfingabúðir.

  5. Styrkbeiðni vegna æfingaferðar til Danmerkur. Mnr. 2019060092

    Samþykkt að veita mfl.kvk.í handknattleik kr. 140 þúsund vegna ferðarinnar.

    18 leikmenn halda til Kolding í Danmörku í æfingabúðir.

  6. Styrkbeiðni vegna Norðurlandamóts U-16 í fimleikum í Svíþjóð. Mnr. 2019060093.
    Samþykkt að veita fimleikadeildinni kr. 30 þúsund vegna ferðarinnar.
    Grótta á einn keppenda í U-16 ára landsliði í áhaldafimleikum.

  7. Styrkbeiðni vegna kaupa á öryggisdýnu. Mnr. 2019060091.

    Dýnukaupin samþykkt kr. 90 þúsund.

  8. Óskalisti Gróttu um nýjan búnað í íþróttahús. Mnr. 2019060094.

    Listinn lagður fram og er íþróttafulltrúa falið að vinna áfram með málið með Gróttu.

  9. Stefnumótun Mennta- og menningarmálaráðuneytisins í íþróttamálum 2019-2030. Mnr. 2019060095.
    Stefnumótunin lögð fram til kynningar.

  10. Launatölur sundlaugar – staða. Mnr. 2016090130.

    Launatölur lagðar fram.

  11. Staða tómstundastyrkja. Mnr. 22017090081.

    Staða tómstundastyrkja lögð fram.

  12. Sundlaug – aðsóknar og tekjutölur. Mnr. 2017040132.

    Aðsóknar- og tekjutölur lagðar fram.

  13. Ýmsir styrkir – staða. Mnr. 20160030068.
    Farið yfir stöðu ýmissa styrkja.

Fundi slitið kl. 17:40.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?